Matgæðingurinn Martha Stewart er ansi klók í eldhúsinu, en hvítlauksbrellan hennar, sem sagt er frá á vef Today slær öll met.
Á vef Today er birt myndband af brellu Mörthu, en um er að ræða tíu sekúndna ráð til að taka hýðið af hvítlauk.
Martha notar tvær jafnstórar skálar úr málmi í brellunni. Hún setur hvítlaukinn með hýði í aðra skálina, lokar henni með hinni skálinni og hristir vel í tíu sekúndur. Eftir þessar tíu sekúndur er hvítlaukurinn hýðislaus og sjónvarpsfólkið trúir ekki eigin augum.