María Rún Bjarnadóttir, lögfræðingur og doktorsnemi við Háskólann í Sussex, vekur athygli á verðmuni á skyri í færslu á Facebook. Á mynd sem fylgir færslunni sést að 170 grömm af Ísey skyri kosta 99 pens í Englandi, eða um 155 krónur. Sams konar skyr kostar 309 krónur í 10-11 og 189 krónur í Nettó, enda verðmunur mikill á milli verslana á Íslandi. Fréttablaðið sagði fyrst frá.
„Einhver veginn er ódýrara að kaupa íslenskt skyr í Englandi en á Íslandi. Keypti Rioja rauðvín a 5 pund í leiðinni. En auðvitað þarf hömlur a samkeppni a mjólkurafurðum og bann við áfengissölu í verslunum á Íslandi. Auðvitað,“ skrifar María við færsluna.
Sunna Gunnars Marteinsdóttir, verkefnastjóri í upplýsinga- og fræðslumálum hjá Mjólkursamsölunni, svarar Maríu í athugasemdum við færsluna og segir ástæðu fyrir verðmuninum liggja í þeirri staðreynd að þetta tiltekna skyr í Englandi sé framleitt í Danmörku.
„Þetta skyr er framleitt í Danmörku af samstarfsfyrirtæki MS. Skyrið sem er selt af MS eða samstarfsaðilum fyrirtækisins er yfirleitt á svipuðu verði og skyr á Íslandi eða dýrara t.d dýrara í Sviss á um 250 kr dósin. – það eru svo ekki hömlur á samkeppni í mjólkuriðnaði bara heimild til samstarfs,“ skrifar hún.
Birna nokkur Hreiðarsdóttir skrifar einnig athugasemd við myndina og telur Sunnu þó ekki hafa svarað af hverju skyrið er ódýrara en á Íslandi.
„En spurningunni er ekki svarað, hvers vegna er skyr sem framleitt er í Danmörku ódýrara en skyr sem framleitt er á Íslandi. Að allt sem framleitt er á Íslandi sé dýrast ætti ekki að vera náttúrulögmál.“
Þá svarar Sunna:
„Birna, ég bendi á að verðið er yfirleitt svipað og ekki dýrast á Íslandi.“