Mæðradagurinn er 12. maí næstkomandi. Kjúklingarisinn KFC tók forskot á sæluna og gaf frá sér myndband í gær á Facebook þar sem þeir óska mæðrum til hamingju með daginn.
KFC er að auglýsa „Chickendale“ í tilefni dagsins.
Í auglýsingunni dansa sterkbyggðir karlmenn berir að ofan og enda með að rífa sig úr buxunum. Meira ætlum við ekki að segja um myndbandið sem þú getur horft á heild sinni hér að neðan.