Ef þú átt banana sem eru orðnir mjög þroskaðir er oft gott að nota þá í bakstur eða matargerð.
Það er einfalt og bragðgott að búa til ís úr bönunum. Það eina sem þarf að gera er að skera 2–3 banana niður í litla bita, setja í blandara ásamt smá vatni og þeyta. Blandan er síðan sett í form og fryst.
Þú getur einnig bragðbætt ísinn með því að setja til dæmis jarðaber, kakó, bláber eða vanilluduft.