Hinn líffræðilega ávöxt en menningarlega grænmetið gúrku þekkja og nota líklega allir Íslendingar. Við skerum hana niður og setjum út í salat og mögulega eru einhverjir sem skella tveimur sneiðum yfir augun til að fríska upp á útlitið. En gúrkuna er hægt að nota til ýmislegs annars sem flestum hefði aldrei dottið í hug að framkvæma.
Þessi græni ílangi ávöxtur er stútfullur af vítamínum en í hverjum og einum má finna B-vítamín (B1-2-3-5 og 6), fólin-sýru, C- vítamín, kalk, járn, magnesíum, fosfór, kalín og sink.
Í þessa hluti má meðal annars nota gúrkuna:
- Ef þú ert þreytt/ur seinni partinn slepptu því þá að fá þér koffíndrykk og borðaðu eina gúrku. Innihaldsefni gúrkunnar gerir það að verkum að hún gefur þér orku fyrir þessa síðustu klukkutíma dagsins.
- Kemur alltaf móða á spegilinn inni á baði eftir að þú ferð í sturtu? Prófaðu að nudda gúrkusneið yfir spegilinn. Hún mun eyða móðunni og gefa ferskan ilm inni á baðherbergi.
- Ef þú nuddar gúrkusneið á appelsínuhúð eða hrukkur þá geta innihaldsefni hennar styrkt húð þína.
- Vilt þú sleppa við þynnkuna eða höfuðverkinn eftir djamm? Borðaðu nokkrar sneiðar af gúrku áður en þú ferð að sofa og þú munt vakna miklu betri daginn eftir.
- Ef þú átt það til að setjast niður fyrir framan sjónvarpið á kvöldin og háma í þig sælgæti eða snakk, prófaðu þá að skipta því út fyrir gúrku. Það mun minnka sykurlöngunina og hungurtilfinninguna sem oft leggst yfir okkur á kvöldin.
- Áttaðir þú þig á því þegar þú mættir í vinnuna að þú gleymdir að bursta skóna? Ekkert mál, nuddaðu nýafskorinni gúrkusneið yfir skóna og þeir verða glansandi fínir.
- Er ískrið í lömunum á svefnherbergishurðinni að gera þig brjálaða/n en þú átt ekki til WD 40 til þess að bera á. Nuddaðu gúrkubita á lömina og heyrðu muninn.
- Er stressið að fara með þig? Skerðu niður heila gúrku í sneiðar og settu ofan í pott ásamt vatni. Kveiktu undir pottinum og bíddu þar til suðan kemur upp. Leyfðu vatninu að sjóða í dágóðan tíma og finndu hvernig gufan hjálpar þér að slaka á.
- Finnur þú fyrir andfýlu en átt ekki tyggjó? Taktu gúrkusneið og þrýstu henni upp í góm með tungunni í þrjátíu sekúndur. Það mun eyða þeim bakteríum sem eru til staðar í munninum á þér og valda andfýlunni.
- Þú getur meira að segja notað gúrku til þess að þrífa vaska og ryðfrítt stál. Hún hjálpar þér að ná af blettum og þú skaðar ekki húðina með eiturefnum.