Það er algjör þvæla að þú þurfir að japla á rándýrum ostum eða borða fokdýrar steikur með uppáhalds víninu þínu. Af hverju ekki bara ís, snakk eða franskar?
Hér fara virtir vínsérfræðingar yfir það hvaða vín á að drekka með ruslfæðinu og er margt sem kemur á óvart.
Poppið dregur fram hnetukeim í hvítvíni, sýran í víninu gefur jafnvægi og býr til ómótstæðilegt „kombó“.
BBQ snakk passar einkar vel með glasi af Pinot Noir. Það er um að gera að sleikja puttana og grípa svo í rauðvínsglasið.
Saltaðar flögur passa einnig mjög vel með Chardonnay eða freyðivíni. Sýran í víninu mætir saltinu og fitunni í flögunum og þá er veisla.
Cheetos, ostapuffs eða álíka ostasnakk passar best með hvítvínu eins og Sauvignon Blanc. Sítrónu- og mandarínubragð vínsins passar vel með subbulegu ostasnakkinu.
Franskar og kampavín (eða freyðivín) er hið fullkomna „kombó“ – en franskar og annar steiktur matur passar sérlega vel með kampavíninu. Mikil sýra mætir salti og mikilli fyllingu. Gosið hreinsar síðan munninn vel fyrir næsta bita.
Það er ekkert nýtt að drekka vín með pítsu, en við erum ekki á fínum ítölskum veitingastað. Við erum að éta sveittustu pítsu í bænum, takk fyrir. Mjúkir berjatónar fara sérstaklega vel saman með sneiðinni.
Rauðvín og súkkulaði er vinsælt „kombó“ – en af hverju að fara þessa augljósu leið? Bættu sætu ofan á sætt með glasi af púrtvíni.
Greining birtist upprunalega í Cosmopolitan.