Martin Kaae Kristiansen, nemandi í líflæknisfræði, keypti ferskt grænmeti í matvöruverslun og rannsakaði grænmetið til að sjá hvað leyndist í matnum.
Martin notaði smásjá og fann ýmsar pöddur í gulrótum, kartöflum, blaðlauk og selleríi. Vert er að taka fram að pöddurnar eru meinlausar en við mælum samt ekki með áhorfi á myndbandið á meðan borðað er.