Vegna fréttar DV í dag um misjafnt hreinlæti á stöðum Domino´s samkvæmt niðurstöðum úr eftirliti Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur hefur fyrirtækið sent DV yfirlýsingu. Þar kemur fram að mikil áhersla sé lögð á eftirlit og hreinlæti á stöðunum og ávallt brugðist við þegar upp koma óheppileg atvik eins og um getur í fréttinni. Eftirlýsingin er eftirfarandi:
Við hjá Domino´s fögnum auknu aðhaldi og gegnsæi hjá Heilbrigðiseftirlitinu með birtingu á eftirlitsskýrslum. Það var tímabært og er öllum til hagbóta, sérstaklega neytendum. Við erum með mjög gott eftirlit með hreinlæti á öllum okkar veitingastöðum. Domino´s hefur í mörg ár verið með vinnslu sína í opnum eldhúsum til að viðskiptavinir okkar geti sjálfir séð hvernig við vinnum. Starfsfólkið okkar fær ítarlega þjálfun og við fylgjum ströngum gæðastöðlum Domino´s international. Við tökum það þess vegna afar alvarlega ef upp koma atvik sem þarf að lagfæra og bregðumst skjótt við. Það var gert í þessu tilfelli einnig og í samráði við heilbrigðiseftirlitið, sem við höfum átt mjög gott samstarf við. Þess má geta að við framkvæmum allsherjar úttekt á öllum okkar stöðum í hverjum mánuði þar sem farið er yfir hreinlæti, vörur, gæði og þjónustu, til að tryggja að ítrustu kröfum sé fylgt. Domino‘s rekur alls 25 staði og fá, ef nokkur, veitingafyrirtæki á Íslandi leggja jafn mikla áherslu á gæðaeftirlit. Því geta viðskiptavinir okkar treyst.
Birgir Örn Birgisson, framkvæmdastjóri Domino´s á Íslandi.