Svanhildur Hólm, aðstoðarkona Bjarna Benediktssonar, fjármálaráðherra, er heldur betur liðleg í bollubakstri, en eins og flestir vita er bolludagur á morgun. Margir taka þó forskot á sæluna í dag og fá sér eina dúnmjúka með rjóma, sultu og glassúr.
Svanhildur bakar hvorki meira né minna en tvö hundruð bollur í „hamfaraeldhúsinu“ eins og hún kallar það.
Sjálfstæðiskonan Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir birtir myndir af bollubakstrinum í sögu sinni á Instagram og segir bollurnar hennar Svanhildar vera þær „allra bestu“.
Svanhildur birtir einnig mynd af vatnsdeigsbollum á Instagram-síðu sinni og verður að segjast eins og er að þær líta afskaplega vel út hjá henni. Greinilega þaulreyndur bollubakari.