C-vítamín er mjög mikilvægt líkamanum og lífsnauðsynlegt. C-vítamín er mikilvægt fyrir myndun bandvefja og vöxt beina. Það gegnir einnig mikilvægu hlutverki fyrir ónæmiskerfið og er meðal annars vörn líkamans gegn sýkingum og bakteríum. C-vítamín hjálpar einnig til við upptöku járns í líkamanum. Ráðlagður dagskammtur af C-vítamíni fyrir fullorðið fólk er í kringum 75 mg. Barnshafandi konur (85 mg) og konur með barn á brjósti (100 mg) ættu að taka inn meira magn.
Þegar margir hugsa um C-vítamín hugsa þeir um appelsínu. En það er fjöldi grænmetis og ávaxta sem innihalda meira C-vítamín en appelsínan góða.
Miðstærð af appelsínu inniheldur að meðaltali 69.7 mg af C-vítamíni og lítil appelsína er með um 51.1 mg af C-vítamíni.
Á myndinni hér að neðan sérðu hversu mikið C-vítamín er í þessu magni af ólíkum afurðum. Það er til dæmis 64 mg af C-vítamíni í hálfu kiwi og 80 mg af C-vítamíni í handfylli af grænkáli.
Aðrar afurðir sem eru með meira C-vítamín en appelsínur:
Lítill blómkálshaus inniheldur 127.7 mg af C-vítamíni, en einnig 5 grömm af trefjum og 5 grömm af próteini. Hálfur bolli af chillipipar er með um 107.8 mg af C-vítamíni. Einnig rósakál, mangó, papaja, rauð paprika og græn paprika.