Mathöll Höfða opnaði dyr sínar í gær þar sem fólki var boðið í smakk af því helsta sem verður þar á boðstólnum. Um var að ræða sérstaka foropnun en Mathöllin opnar fyrir almenningi klukkan 16.00 í dag.
Mikið fjör var í Mathöllinni í gær og rann maturinn greinilega ljúflega niður. Margir veitingastaðir eru í höllinni, allt frá indverskum mat til flatbaka, frá sætum snúðum til mexíkósks matar.
Meðfylgjandi eru nokkrar myndir sem ljósmyndarinn Heiða Helgadóttir tók af herlegheitunum, en Mathöll Höfða er í gamla Hampiðjuhúsinu að Bíldshöfða 9 í Reykjavík.