Stundum eyðum við mörgum þúsundum í hreinsunarvörur þegar lausnin er beint fyrir framan okkur.
Það er nákvæmlega það sem myndband á Facebook-síðunni Five Minute Crafts sýnir, en í því er farið yfir hvernig hægt er að þrífa flísar með vöru sem er til á hverju einasta heimili.
Það sem þarf er einfaldlega tannkrem og tannbursti. Byrjað er á því að setja tannkrem á burstann. Síðan eru flísarnar skrúbbaðar með tannkreminu í smá stund. Því næst er þurrkað yfir herlegheitin með rakri tusku og flísarnar orðnar sem nýjar.
Hægt er að horfa á myndbandið með því að smella hér.