Stórfyrirtækið Mondeléz International, fyrirtækið á bak við kruðeríið frá Cadbury, Oreo, Milka og Trident, leitar nú að fólki sem hefur ástríðu fyrir sætindum og góða bragðlauka. Vill fyrirtækið borga fólki fjórtán dollara á klukkutíma, tæplega sautján hundruð krónur, fyrir að smakka vörur í framleiðslu og gagnrýna þær.
Þeir sem sækja um geta valið um dag og tíma sem þeir mæta og smakka, en fyrirtækið vill ráða ellefu manneskjur í smakkið. Engin reynsla er nauðsynleg því fyrirtækið mun þjálfa smakkarana fyrir smakkið mikla.
Mondeléz gerði svipað á síðasta ári og fékk fimmtán hundruð umsóknir á einum degi. Því miður eru eftirsóttu stöðurnar eingöngu fyrir fólk sem er búsett í Bretlandi.