Það hefur líklegast ekki farið framhjá mörgum að veitingastaðurinn Dill Restaurant var sviptur Michelin-stjörnunni sinni í vikunni. Dill fékk stjörnuna árið 2017, fyrstur íslenskra veitingastaða, en nú er enginn Michelin-staður á landinu.
Tístarar hafa farið mikinn út af þessu á Twitter og boðið upp á skrýtluflaum út af stóra stjörnumálinu.
Ef það er verið að gefa Michelin stjörnur útfrá „consistency“ [stöðugleiki] þá ætti Skalli í Árbæ að vera með a.m.k tvær stjörnur.
— Hafsteinn Hannesson (@HafsteinnOrmar) February 19, 2019
Það gleymist oft í umræðunni en ég fékk Michelin stjörnu í dag. Takk! pic.twitter.com/33N5hDeQU0
— Daníel Ólafsson (@DanniDeluxe) February 18, 2019
Við erum þjóð án McDonalds og Michellin-stjörnu. En eigum Texas-Magga. Það er eitthvað.
— Árni Helgason (@arnih) February 19, 2019
Færeyingar eru hins vegar með tvær Michelin stjörnur og Burger King.
— Sunna V. (@sunnaval) February 19, 2019
Enginn íslenskur veitingastaður með Michelin stjörnu. Færeyskur veitingastaður með tvær. Skellur.
— Henrý (@henrythor) February 19, 2019
Engin Michelin-stjarna á Íslandi sem þýðir að gengið var framhjá KFC í Hafnarfirði enn eitt árið. Sorgardagur.
— Atli Fannar (@atlifannar) February 18, 2019
Helgi í Góu>Michelin-stjarna pic.twitter.com/NOTU2Uc8hy
— Birgir Olgeirsson (@BirgirOlgeirs) February 19, 2019
Ég veit ekki hvort ég er þunglyndur yfir því að vera meiddur á úlnlið og mega ekki spila tennis eða af því að Ísland er núna ekki með neina Michelin stjörnu. Eða bæði.
— Hans Orri (@hanshatign) February 19, 2019
Trúi ekki þetta hafi komið fyrir mig, missti af því að borða á eina Michelin stjörnu staðnum á Íslandi
— Katrín Atladóttir (@katrinat) February 18, 2019
Hvar sækir maður um að gerast útsendari Michelin? pic.twitter.com/6I0PytjHUa
— Örn Úlfar Sævarsson (@ornulfar) February 19, 2019