Við á matarvefnum höfum oft sagt frá undarlegum matarvenjum Íslendinga. Í rannsóknum okkar hefur margoft komið á daginn að Íslendingar fíla að setja alls kyns sósur á ótrúlegustu hluti eins og kokteilsósu á skötu og gráðaost á piparkökur.
Stefán Eiríksson, fyrrverandi lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu og núverandi borgarritari, ákvað að prófa eina furðublöndu og sagði frá því á Twitter-síðu sinni.
„Þetta kombó er i alvörunni til. Einhverjum datt í hug að setja pítusósu ofan á Homeblest. Á súkkulaðihliðina. Ætla að prófa,“ skrifar Stefán við mynd af Homeblest-kexpakka og pítusósu.
Þetta kombó er i alvörunni til. Einhverjum datt í hug að setja pítusósu ofan á Homeblest. Á súkkulaðihliðina. Ætla að prófa #kombó pic.twitter.com/eHtXTYmtbX
— Stefán Eiríksson (@StefanEiriks) February 15, 2019
En hvernig ætli þetta hafi smakkast?
„Þetta var skrítið. Myndi ekki bjóða upp á þetta í afmælinu,“ skrifar kappinn.