Kántrístjarnan Miranda Lambert gekk berserksgang á veitingastaðnum Stoney River Steakhouse í Tennessee samkvæmt frétt TMZ. Fjölmiðillinn hefur undir höndum upptökur af símtölum starfsmanna steikhússins til neyðarlínunnar.
„Hún hljóp bara út um hurðina og abbaðist upp á annað par hér. Afsakið en yfirmaður minn sagði mér að hringja í 911,“ heyrist á einni upptökunni. Á annarri upptöku heyrist starfsmaðurinn lýsa atburðarrásinni betur.
„Þetta er í þriðja sinn sem þau rífast og nú er Miranda að reyna að slá fólk og hún er að henda diskum í það.“
Samkvæmt frétt TMZ var kántrísöngkonan úti að borða með móður sinni og fjölskylduvini þegar að slagsmál brutust út. Þá kemur fram í fréttinni að vinur Miröndu hafi rifist við eldri mann og að rifrildið hafi snúist um nýaldarbörn og síma. Að lokum gekk Miranda að borði mannsins sem hún þekkti ekki og henti salati í konuna hans.
„Yfirmennirnir mínir eru að reyna að halda þeim niðri en þeir geta það ekki,“ heyrist í einum starfsmanni í símtali við neyðarlínuna.
Lögreglan í Nashville staðfestir að hafa verið kölluð að veitingastaðnum en að hvorugur maðurinn ætli að kæra atvikið.