fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Matur

Einn dagur í ísverksmiðju

Íris Hauksdóttir
Laugardaginn 21. desember 2019 17:00

Mynd: Eyþór Árnason

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Emmessís verður 60 ára á komandi ári og er það elsti starfandi ísframleiðandi á landinu. Pálmi Jónsson, framkvæmdastjóri fyrirtækisins, segist hafa það að leiðarljósi að láta aldrei staðar numið en nýverið var allur boxaís færður í umhverfisvænni umbúðir. DV fékk að vera fluga á vegg meðan framleiðsla á jólaísnum stóð sem hæst.

Þrátt fyrir að verksmiðja Emmessíss þekki tímana tvenna fullyrðir Pálmi að ástríða starfsfólksins hafi alltaf einkennt fyrirtækið. „Metnaðurinn fyrir því að búa til góðan, íslenskan, ósvikinn, gæða rjómaís fyrir Íslendinga hefur ætíð verið í fyrirrúmi. Ég leyfi mér því að segja að mannauðurinn sé búinn að reynast Emmessís ómetanlegur og í raun megin ástæða þess að fyrirtækið standi jafn sterkt og það gerir í dag.“

Pálmi viðurkennir að jólin séu annasamur tími og enginn vafi leiki á því hvaða jólaís sé í uppáhaldi hjá íslensku þjóðinni. „Á aðventunni er mest aukning í boxaís hjá okkur en í byrjun mánaðarins breyttum við öllum boxaís í umhverfisvænni umbúðir. Viðbrögðin hafa ekki látið á sér standa og það er greinilegt að Íslendingar láta umhverfismál skipta sig miklu máli. Það endurspeglast í aukinni sölu á vörum sem eru í umhverfisvænni umbúðum.

Enginn vafi leikur á því að ísblómið lifir sterkt í hjörtum Íslendinga og eru yngri kynslóðirnar að viðhalda blóminu sem hluta af jólunum. Svo er það Hnetutoppurinn sem er elsti og vinsælasti ísinn okkar, Íslendingar virðast ekki fá neinn leiða á því að borða hann.

Eitt af stóru áhersluatriðum hjá mér, eftir að ég tók við starfi framkvæmdastjóra, er að Emmessís eigi að vera leiðandi á sínum markaði og aldrei að láta staðar numið. Sem dæmi um það má nefna að í sumar hófum við framleiðslu á nýrri bragðtegund af Djæf, en eins komu á markaðinn nýir laktósafríir íspinnar hjá okkur. Í haust tókum við svo við sölu og dreifingu á Haagen Dazs en frá og með 1. janúar 2020 mun Emmessís sjá um sölu og dreifingu á Ben & Jerry’s- og Magnum-ís á Íslandi. Einnig eru fleiri nýjungar í pípunum en ekki tímabært að flagga þeim á þessum tímapunkti.“

Aðspurður hver sé hans eftirlætisís viðurkennir Pálmi að vera einn þeirra ótal mörgu sem hrífast af gæðum ísblómsins. „Það er engin tilviljun að ísblómið njóti mestra vinsælda enda verður líklega vandfundinn sá ís sem neytendur hafa meiri skoðanir á. Þess vegna gefst ekki rými fyrir neinar breytingar þar. Fólk hefur meira að segja miklar skoðanir á því hvernig eigi að borða ísinn, hvort það eigi að brjóta súkkulaðið í köntunum eða borða sultuna fyrst. Sumir vilja meina að það sé sniðugt að hita botninn fyrst og ná því þannig út með því að hvolfa út úr skálinni en sjálfum finnst mér best að lygna aftur augunum og skófla því þannig í mig.“

Mynd: Eyþór Árnason
Mynd: Eyþór Árnason
Mynd: Eyþór Árnason
Mynd: Eyþór Árnason
Mynd: Eyþór Árnason
Mynd: Eyþór Árnason
Mynd: Eyþór Árnason
Mynd: Eyþór Árnason
Mynd: Eyþór Árnason
Mynd: Eyþór Árnason
Mynd: Eyþór Árnason
Mynd: Eyþór Árnason
Mynd: Eyþór Árnason
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Matur
20.12.2023

Grillaður hunangshjúpaður hestshaus með sinnepsfræjum, villihvítlauk og blóðbergi

Grillaður hunangshjúpaður hestshaus með sinnepsfræjum, villihvítlauk og blóðbergi
Matur
07.12.2023

Hátíðarbakkinn

Hátíðarbakkinn
Matur
04.11.2023

Djúsí beikonborgari með mozzarella fyllingu

Djúsí beikonborgari með mozzarella fyllingu
Matur
03.11.2023

Kjúklingalasagna sem allir elska

Kjúklingalasagna sem allir elska
Matur
20.10.2023

Salat með byggi, sætum kartöflum, graskersfræjum og hvítlauk

Salat með byggi, sætum kartöflum, graskersfræjum og hvítlauk
Matur
19.10.2023

Bragðmikil sveppasúpa

Bragðmikil sveppasúpa