Fyrrverandi klámstjarna og ketó drottningin Jenna Jameson er hætt á ketó og mun kannski ekki byrja aftur. Hún segir frá þessu í nýjustu Instagram-færslu sinni.
„Játning. Ég hef þyngst um 9 kíló. Úff. Ég ákvað að taka pásu frá ketó og lifa mínu besta kolvetna lífi. Þyngdin kom hratt og ákaft til baka. Ég veit um marga sem eru að hætta á ketó því það er erfitt að viðhalda því og eftir eitt og hálft ár er ég sammála. Ég er ekki viss um hvort ég fari aftur alveg á ketó eða telji bara kaloríur. Hvað finnst ykkur?“
https://www.instagram.com/p/B5tpenSB9Ln/
Þá höfum við það, það gæti verið að ketó drottningin sjálf sé alfarið hætt á ketó. Hugsanlega mun hún fylgja lágkolvetnamataræði. Eða bara hefðbundnu mataræði og telja ofan í sig kaloríurnar.
Hvað segja lesendur, hvað ætti hún að gera?