Athafnakonan og fyrrverandi fegurðardrottningin Tanja Ýr er gríðarlega vinsæl á samfélagsmiðlum en þar sýnir hún samviskusamlega frá lífi sínu á hverjum einasta degi.
https://www.instagram.com/p/Bq-HpJwgcgV/
Í gærkvöldi deili Tanja Ýr með fylgjendum sínum uppskrift að einstaklega girnilegum sæt kartöflurétt. Þessi hæfileikaríka kona birti uppskriftina í sögu sinni á Instagram, en það skemmir ekki fyrir að mjög einfalt er að gera réttinn vegan fyrir þá sem taka þátt í Veganúar.
„Ég reyni alltaf að gera allar uppskriftir meira „simple“ en þær eru,“ skrifar Tanja Ýr á Instagram, en það er um að gera að treysta dómgreind þessarar ungu kjarnakonu sem hefur afrekað ansi margt á stuttri ævi.
Hér kemur sætkartöflu uppskrift úr smiðju Tönju Ýrar – fæði sem er nógu gott fyrir fegurðardrottningu.
Ég skar og hitaði kartöflurnar í ofni í 40 mín á undir og yfirhita 200. Svo steikti ég grænmeti sem ég átti á pönnu með BBQ, chilli, garlic. Tók kartöflurnar úr ofninum og maukaði þær og blandaði grænmetinu við, bætti við osti og setti aftur í ofn í um 5-8 mín. Svo sýrður rjómi frá Oatly með sem er vegan. Tók allt í allt um 60 mín. Og gott að setja baunir. Ég setti kjúklingabaunir.