Meghan Markle, hertogynjan af Sussex, bauð vini sínum, förðunarfræðingnum Daniel Martin, í dögurð um helgina. Daniel leyfði fylgjendum sínum á Instagram að sjá hvað hertogynjan bauð upp á, en hún töfraði fram ristað brauð með lárperu og trufflur frá Fortnum & Mason.
Með matnum var að sjálfsögðu te, sem borið var fram í katli frá Soho Farmhouse. Ketillinn kostar tæpar fjögur þúsund krónur en bollar í stíl eru á rúmlega 1.500 krónur stykkið.
https://www.instagram.com/p/Bs2csAnh2NP/
Við myndina af herlegheitunum þakkaði Daniel Meghan fyrir að vera enn hvíslari þegar kæmi að ristuðu brauði með lárperu, sem þýðir að hún er ansi lunkin í að matreiða réttinn. Daniel vinnur fyrir ýmsar skærar stjörnur og sá meðal annars um að gera Meghan fína fyrir brúðkaup sitt í fyrra.
Meghan á von á sínu fyrsta barni með eiginmanni sínum, Harry prins, í apríl næstkomandi.