Fyrrverandi fegurðardrottningin Ingibjörg Egilsdóttir og tónlistarmaðurinn Einar Egilsson hafa verið að draga sig saman síðustu mánuði, eins og DV sagði frá í gær.
Í dag birtir Ingibjörg mynd á sögu sinni á Instagram og virðist hafa verið að baka fyrir meintan ástmann sinn.
„Super healthy hráfæðiskaka,“ skrifar Ingibjörg og bætir við fyrir neðan að Einar hafi pantað þessa girnilegu köku. Merkir Ingibjörg Instagram-reikning Einars á myndinni, en oft hefur það verið sagt að leið að hjarta mannsins sé í gegnum magann.
Ingibjörg starfaði víða um heim sem fyrirsæta í kjölfar þess að hún tók þátt í fegurðarsamkeppninni Ungfrú Ísland og Miss Universe. Hún á einn son með fyrrverandi kærasta sínum, Þorsteini M. Jónssyni, oftast kallaður Steini í Kók.
Einar skildi við söngkonuna Svölu Björgvinsdóttur á síðasta ári, eftir tæplega aldarfjórðungs samband. Þau gengu í það heilaga árið 2013 og störfuðu ávallt mjög náið saman í tónlistinni.