fbpx
Mánudagur 22.apríl 2024
Matur

Foodco-samruni í vændum – 10 veitingastaðir reknir af sömu aðilum: „Við ætlum að vanda okkur“

Ritstjórn DV
Föstudaginn 30. ágúst 2019 08:28

Jóhannes Ásbjörnsson er oftast kenndur við Hamborgarafabrikkuna.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fyrirtækið Foodco, sem rekur meðal annars Aktu Taktu, Eldsmiðjuna og Saffran, hefur ákveðið að sameinast fyrirtækinu Gleðipinnanum, sem stendur á bak við Hamborgarafabrikkuna, Keiluhöllina og Shake&Pizza svo eitthvað sé nefnt. Samkeppniseftirlitið á eftir að samþykkja samrunann en Jóhannes Ásbjörnsson, eða Jói eins og hann er oftast kallaður, verður einn af aðaleigendum nýja félagsins sem mun heita Gleðipinninn.

„Það eru skemmtilegar tímar framundan. Okkur hefur gengið vel með þá staði sem við höfum opnað, Hamborgarafabrikkuna, Keiluhöllina og Shake&Pizza. Svo erum við nýlega komin inn í rekstur Blackbox pizzastaðanna,” segir Jói í fréttatilkynningu um fyrirhugaðan samruna.

Staðirnir eiga skilið meiri ást

Þeir tíu veitingastaðir sem munu tilheyra Gleðipinnanum eru American Style, Hamborgarafabrikkan, Eldsmiðjan, Blackbox, Saffran, Pítan, Aktu taktu, Kaffivagninn, Roadhouse, Keiluhöllin og Shake&Pizza. Stefnt er að fjölgun staða á næstu árum og mun ný Keiluhöll og Shake&Pizza staður opna á jarðhæð KEX hostel í miðborg Reykjavíkur árið 2020. Jói segir að unnið verði að því að bæta sérkenni staðanna með samrunanum.

„Sumir staðirnir eiga að okkar mati skilið að fá aðeins meiri ást en þeir hafa fengið að undanförnu og ætlum við einmitt að ráðast í metnaðarfullar og ástríkar aðgerðir á næstunni. Við ætlum að leggja enn meiri áherslu á gæði enda má lengi gott bæta. Undir okkar hatti verða bæði rótgrónir staðir og nýrri í bland og við erum svo heppin að innan okkar hóps eru meistarakokkarnir Eyþór Rúnarsson, Karl Viggó Viggósson og Viktor Örn Andrésson, sem ásamt fleiri góðum ráðgjöfum munu koma að vöruþróuninni hjá okkur.“

Jói segir þetta mikilvægt því allir veitingastaðirnir eigi sögu.

„Kaffivagninn er til dæmis elsti veitingastaður landsins, stofnaður 1935. Svo er gaman að segja frá því að ég man vel eftir mér í Fylkis-apaskinnsgalla á American Style í Skipholti þegar ég var 8 ára. Núna rúmum 30 árum síðar er ég kominn í hlutverk veitingamanns á sama stað, sem er frábært. Veitingageirinn er síbreytilegur og krefjandi. Ég trúi því að með skýrri sýn á gæði matar og þjónustu muni allir staðirnir eiga möguleika á að vaxa og dafna enn frekar. Við ætlum að vanda okkur.“

Stjórnendur

Eins og áður segir verður Jói einn af aðaleigendum fyrirtækisins. Auk hans mun Jóhann Þórarinsson verða forstjóri, Bjarni Gunnarsson verður í framkvæmdastjórn, en Bjarni hóf störf í söluturninum Staldrinu 15 ára gamall og hefur starfað óslitið hjá fyrirtækinu síðan. María Rún Hafliðadóttir verður mannauðsstjóri. Trausti Snær Kristjánsson verður framkvæmdastjóri Hamborgarafabrikkunnar, en hann hefur starfað á staðnum frá opnun hans árið 2010. Þá mun Andrea Pétursdóttir verða framkvæmdastjóri Keiluhallarinnar og Shake&Pizza, en Andrea hefur fjölbreytta reynslu úr atvinnulífinu þrátt fyrir ungan aldur. Karl Viggó Viggósson og Jón Gunnar Geirdal, stofnendur og meðeigendur í Blackbox munu áfram reka þá staði og leiða vöxt þeirra. Guðmundur Auðunsson verður starfandi stjórnarformaður hins sameinaða félags.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Matur
20.12.2023

Grillaður hunangshjúpaður hestshaus með sinnepsfræjum, villihvítlauk og blóðbergi

Grillaður hunangshjúpaður hestshaus með sinnepsfræjum, villihvítlauk og blóðbergi
Matur
07.12.2023

Hátíðarbakkinn

Hátíðarbakkinn
Matur
04.11.2023

Djúsí beikonborgari með mozzarella fyllingu

Djúsí beikonborgari með mozzarella fyllingu
Matur
03.11.2023

Kjúklingalasagna sem allir elska

Kjúklingalasagna sem allir elska
Matur
20.10.2023

Salat með byggi, sætum kartöflum, graskersfræjum og hvítlauk

Salat með byggi, sætum kartöflum, graskersfræjum og hvítlauk
Matur
19.10.2023

Bragðmikil sveppasúpa

Bragðmikil sveppasúpa