Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, hleypti í dag af stokkunum átaki þar sem fólk er hvatt til að kaupa íslenskar vörur. Frá þessu var sagt í kvöldfréttum RÚV. Opnunarhátíðin var haldin í Bónus í Garðabæ, en í versluninni rakst Guðni á móður sína fyrir einskæra tilviljun.
„Mig langaði til þess að styrkja þetta ágæta framtak, hvetja fólk til þess að huga að því sem er búið til hér heima. Íslenskt, gjörið svo vel,“ segir Guðni í viðtali við RÚV og heldur áfram. „Auðvitað erum við í þannig samfélagi að við flytjum inn og við flytjum út og allt í góðu með það. En ég held að það sé sjálfsagt að við reynum að hugsa aðeins um það sem við gerum vel hér heima, það sem við framleiðum hér. Það er gott fyrir okkur sjálf, okkar efnahag og það er gott fyrir umhverfið líka – að fara ekki yfir lækinn að sækja vatnið ef svo má segja. Þannig að með þessum hætti legg ég mitt litla lóð á vogarskálarnar.“
Aðspurður hvort móðir hans velji íslenskt ljóstraði hann því upp hvað hann fær í matinn þegar hann kíkir í heimsókn.
„Já ég held að það hljóti að vera, ég fæ að minnsta kosti góðan plokkfisk hjá henni þegar ég kem í heimsókn.“