fbpx
Fimmtudagur 18.apríl 2024
Matur

Fór á 61 dags safaföstu: „Ég hlusta alltaf vel á líkama minn og hvernig mér líður“

Guðrún Ósk Guðjónsdóttir
Laugardaginn 9. mars 2019 12:00

Jónína Ásdís fór á 61 dags safaföstu.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Jónína Ásdís heilsumarkþjálfi lauk 61 dags safaföstu síðastliðinn janúar. Hún var því á safaföstu yfir jólin og drakk safa á aðfangadagskvöld líkt og aðra daga. Jónína Ásdís hafði kynnt sér safaföstur í mörg ár áður en hún lét til skarar skríða. Hún segir ástæðuna fyrir safaföstunni hafa verið heilsutengda en hún glímir við liða- og vefjagigt og iðraólgu.

Í samtali við DV fer Jónína Ásdís yfir safaföstuna, ávinninginn og hvernig hún entist svona lengi.

Hvað er safi og hvernig virkar safafasta?

„Safi er þegar þú tekur hratið, sem eru trefjarnar, úr ávöxtum og grænmeti. Það er einfaldasta lýsingin á þessu,“ segir Jónína Ásdís og heldur áfram:

„Þegar þú drekkur safa færðu næringuna mjög fljótt í líkamann því þú ert búin að fjarlæga það sem fer í gegnum allt meltingarkerfið. Þannig þú færð vítamín, steinefnin og orkuna úr safanum mjög snögglega. Þú ert að hjálpa líkamanum að fá næringu án þess að hann þurfi að hafa mikið fyrir því. Þannig að þú ert í rauninni að gefa meltingunni hvíld, því þú ert að fá mjög mikla næringu á mjög einfaldan máta.“

Jónína Ásdís tekur fram að safaföstur séu ekki æskilegar fyrir ófrískar konur eða konur með barn á brjósti.

Nóg af grænu til í ísskáp Jónínu Ásdísar. Mynd: Hanna/DV

Heilsufarsástæður

Jónína Ásdís er með vefjagigt, liðagigt og iðraólgu (IBS). Hún hefur haldið einkennum sjúkdóma sinna að mestu leyti niðri með mataræði. Hún hefur verið á hráfæði síðustu tvö ár. Jónína Ásdís varð vegan fyrir sex árum og á sama tíma hætti hún að borða glúten og allan viðbættan sykur.

„Ég hef verið að kljást við alls konar líkamleg verkefni og ég hef séð hvernig ég get haft áhrif á það hvernig mér líður með mataræði. Ég fór því á safaföstu af heilsufarsástæðum. Ég var ekki að gera þetta til að léttast eða neitt þannig, heldur algjörlega heilsunnar vegna,“ segir Jónína Ásdís og bætir við:

„Það er ekkert í mataræðinu mínu sem myndi teljast óhollt, og því var safafastan næsta skrefið fyrir mig í átt að betri heilsu. Mig langaði að sjá hversu mikið ég myndi ná bólgum niður með því að fara á safaföstu. Með því að næra líkama minn, án þess að hann þyrfti að hafa fyrir því, vildi ég reyna að gefa honum svigrúm til að vinna í þeim bólgum og sjúkdómum sem ég er með.“

Járnskortur

Jónína Ásdís hefur glímt við járnskort og verið blóðlítil síðan hún var barn. Eftir safaföstuna fór hún í blóðprufu og kom mjög vel út í járni. Allt annað kom einnig eðlilega út.

Jónína Ásdís notaði vefsíðuna cronometer.com til að tryggja að hún væri örugglega að fá alla þá næringu sem hún þurfti. Þar skráði hún inn safann sem hún drakk.

„Ég geri bara það sem ég trúi að sé raunverulega gott fyrir mig, annars hefði ég ekki enst í 61 dag. Ég hlusta alltaf vel á líkama minn og hvernig mér líður.“

Jónína Ásdís ákvað að halda áfram að taka inn þau bætiefni og vítamín sem hún var vön að taka og tók inn góðgerla, D-vítamín, B12, vegan-omega 3 og fjölvítamín meðan á safaföstunni stóð.

Löng safafasta

Áður en Jónína Ásdís fór á safaföstuna hafði hún hugsað sér að taka langa safaföstu sem yrði 30–60 dagar.

„Ég var með það hugarfar að á meðan ég trúði því að ég væri að gera mér gott myndi ég halda áfram,“ segir Jónína Ásdís.

Þegar Jónína Ásdís byrjaði á safaföstunni var hún búin að búa sig undir að líðan hennar kynni að versna áður en hún myndi skána og sú varð raunin.

„Mér byrjaði að líða vel á sautjánda degi. Það tók líkamann þennan tíma að aðlagast alveg safaföstunni og búa til nýtt norm. En það sem ég lærði af henni núna var að ég myndi fara öðruvísi inn í safaföstuna og ég myndi brjóta hana öðruvísi. Ég myndi gefa mér lengri tíma í að fara hægar í föstuna og einnig enn hægar úr henni.“

Jónína Ásdís segir að margir finni fyrir „afeitrunareinkennum“ þegar þeir fara á safaföstur. Hún fór úr hráfæði í safaföstu svo það var ekki mikið áfall fyrir líkama hennar. Mesti munurinn lá í trefjunum, eða skorti á þeim, og þurfti líkaminn að aðlagast því.

Jónína Ásdís: „Ég hlusta alltaf vel á líkama minn og hvernig mér líður.“ Mynd: Hanna/DV

Fann ekki fyrir hungri

„Ég fann ekki almennilega fyrir hungri fyrr en ég braut föstuna. Ef ég var búin að undirbúa daginn gekk þetta mjög vel. Ég drakk líka mjög mikið af safa. Ég drakk nokkra lítra af safa á dag en magnið var misjafnt eftir dögum,“ segir Jónína Ásdís.

Til að gera grænan safa notaði Jónína Ásdís gúrkur, grænkál, romaine-kál, brokkolí og perur. Hún notaði oftast þessi hráefni en blandaði þeim á mismunandi hátt.

Jónína Ásdís drekkur enn þá mikið magn af grænum safa og byrjar yfirleitt daginn á honum.

Framkvæmd

Jónína Ásdís notar „hæga“ safapressu sem „tyggur“ afurðina í stað þess að tæta hana. Þar sem þetta er hæg safapressa tekur það Jónínu Ásdísi langan tíma að gera grænan safa. Hún gerði oftast safa fyrir tvo daga í senn á kvöldin og það tók um tvær klukkustundir. Hún segist þó hafa nýtt tímann til góðs og hlustað á hljóðbækur eða hlaðvörp eða horft á þætti.

Aðspurð hvort það fylgi því mikill kostnaður að gera safa segir Jónína Ásdís að það sé mismunandi. „Það þarf mikið magn af grænmeti til að gera mikið magn af safa. Úr brokkolí fær maður lítið magn af safa en úr gúrku fær maður mjög mikið magn. Það er hægt að setja saman safa á alls konar hátt.“

Jónína Ásdís drakk mikið magn af grænum safa. Mynd: Hanna/DV

Eldaður matur

Aðspurð hvort hana hafi ekki langað að narta í eitthvað, sérstaklega þegar hún var að útbúa mat fyrir drengina sína segir Jónína Ásdís að svolítið furðulegt hafi gerst.

„Það var mjög skrýtið, en mig fór að langa í eldaðan mat. Ég var mikið að skoða uppskriftir að elduðum mat vegna vinnunnar og það kveikti löngun, en ég hef ekki borðað eldaðan mat í nokkur ár. Þessi löngun í eldaðan mat varði samt mjög stutt og ég fann meira hvað ég var spennt að fara að búa til nýjar uppskriftir og nýjan hráfæðismat eftir safaföstuna. En þetta skapar meiri meðvitund. Ég fór að hugsa af hverju mig langaði í nasl, þótt ég væri ekki einu sinni svöng.“

Safi í jólamatinn

Jónína Ásdís var á safaföstunni yfir jólin. Hún er hráfæðisæta svo hún borðar ekki hinn hefðbundna jólamat. Aðspurð hvort það hafi verið skrýtið að drekka safa á aðfangadagskvöld svarar Jónína Ásdís neitandi:

„Það gekk mjög vel. Alltaf þegar ég tek ákvarðanir um að gera eitthvað er sannfæringin svo sterk að það er ekkert sem getur brotið það. Ef ég trúi því að ég sé að gera gott fyrir mig og hef trú á því sem ég er að gera þá dofnar allt hitt.“

Jónína Ásdís segir að hún hafi sett safann í skál og borðað eins og súpu. „Eldri strákurinn minn vildi líka fá safa í skál og fékk sér með mér með jólamatnum.“

Borðaði eftir 61 dag

Jónína Ásdís fann mun á líkama sínum þegar hún gerði líkamsþyngdaræfingar heima og teygjur.

„Ég fann að ég var léttari á mér. Þegar maður er með gigt er maður stífari, en það var léttara fyrir mig að hreyfa mig.“

Jónína Ásdís byrjaði að borða aftur 21. janúar, eftir að hafa drukkið einungis safa í 61 dag. Hún segist hafa byrjað að borða vatnsmelónu og síðan aðra vatnsríka ávexti og grænmeti eins og gúrkur.

Jónína Ásdís segir ávinninginn hafa verið margs konar. Fyrir utan að hafa liðið betur líkamlega segir hún að hún hafi verið skýrari í kollinum.

„Markmiðið í öllu sem ég geri er líka alltaf að skilja meira og læra meira. Með aukinni þekkingu og meðvitund get ég gert betur og hugsað betur um mig og aðra,“ segir Jónína Ásdís.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Matur
20.12.2023

Grillaður hunangshjúpaður hestshaus með sinnepsfræjum, villihvítlauk og blóðbergi

Grillaður hunangshjúpaður hestshaus með sinnepsfræjum, villihvítlauk og blóðbergi
Matur
07.12.2023

Hátíðarbakkinn

Hátíðarbakkinn
Matur
04.11.2023

Djúsí beikonborgari með mozzarella fyllingu

Djúsí beikonborgari með mozzarella fyllingu
Matur
03.11.2023

Kjúklingalasagna sem allir elska

Kjúklingalasagna sem allir elska
Matur
20.10.2023

Salat með byggi, sætum kartöflum, graskersfræjum og hvítlauk

Salat með byggi, sætum kartöflum, graskersfræjum og hvítlauk
Matur
19.10.2023

Bragðmikil sveppasúpa

Bragðmikil sveppasúpa