fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Matur

Jenna Jameson á „skítugt, lítið leyndarmál“

Lilja Katrín Gunnarsdóttir
Sunnudaginn 10. febrúar 2019 13:00

Jenna hefur unnið mikið í sjálfri sér.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fyrrverandi klámstjarnan Jenna Jameson hefur farið mikinn á Instagram síðustu mánuði eftir að hún byrjaði á ketó mataræðinu svokallaða.

Jenna hefur verið ketó síðan snemma á síðasta ári og ákvað að breyta um lífsstíl í kjölfar þess að hún bætti mikið á sig þegar hún gekk með dóttur sína Batel, sem kom í heiminn í apríl árið 2017. Í nýrri færslu á Instagram ljóstrar hún upp leyndarmáli.

https://www.instagram.com/p/BtmN0ZOBMEC/

„Tölum um Photoshop. Það er skítugt, lítið leyndarmál. Ég var alltaf fótósjoppandi hér áður fyrir. Ég skammaðist mín fyrir líkama minn eftir fæðingu. Oj. Núna skammast ég mín fyrir að hafa skammast mín,“ segir Jenna og heldur áfram.

„Ég er leið yfir því að þjóðfélagið setur óraunsæ markmið fyrir konur um að ná sér eftir barnsburð. Ég vildi að ég hefði skilið að það yrði ekki gert grín að mér fyrir að vera níutíu kíló, en í hreinskilni sagt held ég að ég hefði samt notað fótósjopp.“

Jenna er nú hætt að laga myndirnar sínar til með myndvinnsluforritinu, en hún hefur misst tugi kílóa á ketó.

„Ég vona að við komumst á þann stað að konum líði vel á hverju æviskeiði. Fallegu og stuðningsríku athugasemdirnar ykkar lyfta þessu samfélagi upp á hærra plan. Það er tekið eftir ástinni ykkar,“ skrifar stjarnan.

https://www.instagram.com/p/BtrUrqRBkx0/

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Matur
20.12.2023

Grillaður hunangshjúpaður hestshaus með sinnepsfræjum, villihvítlauk og blóðbergi

Grillaður hunangshjúpaður hestshaus með sinnepsfræjum, villihvítlauk og blóðbergi
Matur
07.12.2023

Hátíðarbakkinn

Hátíðarbakkinn
Matur
04.11.2023

Djúsí beikonborgari með mozzarella fyllingu

Djúsí beikonborgari með mozzarella fyllingu
Matur
03.11.2023

Kjúklingalasagna sem allir elska

Kjúklingalasagna sem allir elska
Matur
20.10.2023

Salat með byggi, sætum kartöflum, graskersfræjum og hvítlauk

Salat með byggi, sætum kartöflum, graskersfræjum og hvítlauk
Matur
19.10.2023

Bragðmikil sveppasúpa

Bragðmikil sveppasúpa