Grínistinn Sólmundur Hólm var gestur í liðnum Hvað er í kvöldmat hjá Loga Bergmanni og Huldu Bjarna á K100, þar sem hann var einfaldlega spurður hvað hann ætlaði að hafa í kvöldmat.
Sólmundur á von á barni með unnustu sinni, fjölmiðlakonunni Viktoríu Hermannsdóttur, og segist elda í níutíu prósent tilvika á heimilinu. Þá ljóstraði hann einnig upp hvaða mat Viktoría er sólgin í.
„Oft er eitthvað sem þær vilja meira en annað og grjónagrautur er mjög vinsæll hjá minni konu. Henni finnst hann voðalega góður núna,“ segir Sólmundur, sem hagar seglum eftir vindi þegar kemur að kvöldmatnum.
„Hann stjórnast af því hvað hana langar í.“
Aðspurður hvort Viktoría þrái ekki eitthvað óhollt og sætt í eftirmat, til dæmis ís, segir hann svo ekki vera.
„Grjónagrauturinn er með því óhollara sem hún er að borða.“
Hér fyrir neðan má hlusta á viðtalið í heild sinni, þar sem Sóli talar til dæmis um uppistandið sitt Varist eftirhermur í Bæjarbíói.