Það kannast eflaust margir við það að búa til dýrindis guacamole, eða lárperumauk, geyma það í ísskáp yfir nóttu og sjá sér svo til skelfingar að það er orðið brúnt.
Á vefsíðunni Lifehacker er til ráð við þessu vandamáli, sem sumum finnst kannski ógeðslegt. Ráðið felst einfaldlega í því að hella ögn af vatni ofan á maukið, loka skálinni með plastfilmu og skella maukinu síðan aftur inn í ísskáp í allt að þrjá daga.
Þetta er svipað og þegar örlítið af olíu er sett ofan á pestó til að halda því grænu, en olían passar að loft komist ekki í pestóið. Vatnið gerir það sama fyrir lárperumaukið.
Þegar á svo að borða maukið er vatninu einfaldlega hellt af maukinu og hrært aðeins upp í því. Einfalt, en svínvirkar.