Margir eru með ofnæmi fyrir eggjum eða borða þau ekki af siðferðislegum ástæðum, þá sérstaklega grænkerar. Egg eru hins vegar mikilvægt hráefni í bakstri. Við á matarvefnum komumst nýlega að því að það er hægt að nota sódavatn í staðinn fyrir egg í bakstri.
Já, þú last rétt – sódavatn.
Sódavatnið gefur bakkelsi raka en einnig góða lyftingu, líkt og egg. Þetta hráefni er líka tilvalið fyrir þá sem vilja minnka fituinnihald bakkelsisins þar sem sódavatn er algjörlega fitusnautt.
Hægt er að nota eina litla dós af sódavatni, eða 330 sentilítra, í staðinn fyrir egg, olíu og vatn í kökumixi sem keypt er úti í búð. Þá er einnig hægt að nota um það bil 1/4 af bolla, eða sextíu grömm, fyrir hvert egg í öðrum hefðbundnum uppskriftum.
Þessi leið virkar vel þegar baka skal kökur, bollakökur eða einföld og fljótleg brauð. Þvílik snilld!