fbpx
Miðvikudagur 24.apríl 2024
Matur

Anna Mjöll fékk svæsna matareitrun: „Maturinn kom út alls staðar sem hann gat“

Lilja Katrín Gunnarsdóttir
Föstudaginn 5. október 2018 10:00

Anna Mjöll syngur Bowie um helgina.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Ég er mikil áhugamanneskja um mat. Ég hef víst alltaf verið það að sögn mömmu, sem segir að ég hafi alltaf verið róleg og ánægð í barnastólnum svo lengi sem ég hafði eitthvað að borða fyrir framan mig. Ég var víst síborðandi. Spínat var víst í miklu uppáhaldi,“ segir stórsöngkonan Anna Mjöll Ólafsdóttir hlæjandi sínum smitandi hlátri.

Anna Mjöll er sérstakur gestur á tónleikunum Celebrating David Bowie sem fara fram í Hörpu 7. og 8. október. Anna Mjöll stígur á svið fyrra kvöldið en meðal laga sem hljóma það kvöld verða Ziggy Stardust, Modern Love, Hallo Spaceboy og Heroes. Anna Mjöll er búsett vestan hafs og hefur nóg að gera í söngnum. Hún er mikill matgæðingur og nýtir stundir á milli stríða til að leika sér í eldhúsinu.

Svört, brennd beinagrind á diski

Anna Mjöll getur ekki borðað svið.

„Mér þykir mjög gaman að halda stór matarboð. Því fleiri sem koma í mat, því betra,“ segir Anna Mjöll, sem passar að hafa alltaf nóg af mat sem gleður hjarta og maga í ísskápnum. „Ég passa að eiga alltaf egg, mjólk, ost, vínber og hvítvín í ísskápnum.“

En hvaða mat getur þú alls ekki borðað?

„Ég hef nú aldrei getað borðað sviðakjamma,“ segir Anna Mjöll og hlær. „Ég vil helst ekki borða neitt sem er að horfa á mig á meðan ég borða. Ég hef prófað hitt og þetta eins og kengúru, snák, snigla og krókódíl en þau horfðu öll í hina áttina á meðan ég borðaði,“ bætir hún við.

Ef þú þyrftir að velja eina máltíð til að borða það sem eftir er ævinnar – hvað mundir þú velja?

„Ef ég hefði bara eina máltíð myndi ég velja jóla-lambarúlluna með brúnkálinu sem mamma gerir. Hún er best.“

Hver er skrýtnasti rétturinn sem þú hefur smakkað?

„Það var sennilega „fresh fish“ sem ég pantaði einu sinni í Bangkok. Það var ekkert ferskt við hann. Það var búið að kveikja í honum og ég fékk bara svarta, brennda beinagrind á diskinn.“

Íhugaði að hringja heim og segja bless

Talið berst að eftirminnilegri minningu tengdri mat. Þá stendur ekki á svörunum hjá okkar konu, en við vörum lesendur við grafískri lýsingu á því sem gekk á.

„Ég man eitt sinn á tónleikaferðalagi í Búkarest. Við vorum öll voðalega þreytt og komum inn á mjög fínt hótel þar sem þjónustufólkið beið eftir okkur í sínu fínasta pússi og vísaði okkur inn í sal. Þar var stærsta og flottasta hlaðborð sem við höfðum nokkurn tímann séð. Við réðumst á borðið og ég fékk mér helling af dýrindis rækjum og hitt og þetta,“ segir Anna Mjöll, sem var södd og sæl eftir máltíðina. Hálfum sólarhring síðar dundu ósköpin yfir.

Anna Mjöll naut matar og drykkja með félögum sínum og fékk sér meðal annars rækjur.

„Tíu til tólf tímum síðar fór ég að skjálfa inni á hótelherbergi og þá byrjaði ballið – matareitrun af verstu tegund,“ segir Anna Mjöll og brosir er hún rifjar upp þessa hræðilegu lífsreynslu. „Ég var ekki viss um að ég myndi lifa þetta af. Ég var að hugsa um að hringja heim og segja bless, bara svona til vara. Maturinn kom út alls staðar sem hann gat og af svo miklum krafti að hann kom meira að segja út um nefið. Ég var svo máttlaus að ég var komin með þetta í hárið og út um allt. Ég náði að hringja í lækninn sem ferðaðist með okkur sem bauðst til að koma inn í herbergi. En honum var ekki alveg treystandi í svoleiðis aðstæðum þannig að ég sagði honum að ég myndi koma til hans. Hann var uppi á efstu hæð með Julio Iglesias,“ segir Anna Mjöll, en hún ferðaðist um tíma um heiminn með spænska látúnsbarkanum og hljómsveit hans.

„Ég náði að skríða út í lyftu með hárið allt klístrað, svarta bauga undir augunum og lyktin af mér hefur örugglega verið allsvakaleg. Ég mætti hjónum í lyftunni sem héldu niðri í sér andanum. Ég man alltaf eftir því þegar lyftudyrnar opnuðust og fyrir framan mig stóðu þrír vel vopnaðir lífverðir. Þeir lögðu allir hönd á byssuna. Ég leit á þá í allri minni dýrð og þeir litu á mig. Ég gekk bara beint framhjá þeim án þess að segja orð. Þeir sáu örugglega að það væri bara best að láta þessa eiga sig,“ segir Anna Mjöll, sem getur hlegið dátt að atvikinu í dag. Sem betur fer náði söngkonan sér að fullu og fékk síðar að vita að alls nítján manns hefðu fengið matareitrun þetta kvöld, þar af fjórir mjög alvarlega.

Karrí í kósímat

Eftir þessa átakanlegu sögu er eilítið kómískt að biðja Önnu Mjöll um uppskriftir að hennar eftirlætis kósímat og eftirrétti.

„Minn kósímatur í augnablikinu eru réttir eins og þessi kókoskarríkjúklingur (sjá mynd). Auðveldir og mjög góðir fyrir sálina. Ég bæti oftast við frosnum, grænum baunum eða bara einhverju frosnu grænmeti sem er til í frystinum. Svo læt ég líka slatta af Garam Masala-kryddi í alla karrírétti. Það gerir þá alltaf betri og ýtir undir karríbragðið góða.“

Kókoskarríkjúklingur er í uppáhaldi hjá söngkonunni.

Kókoskarríkjúklingur

Uppskrift af vefsíðunni Epicurious

Hráefni:

4 kjúklingabringur, skornar í litla bita
2½ tsk. milt karríkrydd
1½ tsk. salt
½ tsk. pipar
2 msk. kókos- eða grænmetisolía
½ meðalstór laukur, saxaður
1 dós kókosmjólk
1 engiferbútur, án hýðis
4 hvítlauksgeirar, án hýðis
½ bolli kasjúhnetur (má sleppa)
1½ tsk. sinnepsfræ (má sleppa)
140 g spínat
Kóríander
Hrísgrjón eða naan-brauð (meðlæti)

Aðferð:

Setjið kjúkling í meðalstóra skál og kryddið með karríi, salti og pipar. Takið pönnu í hönd og hitið tvær matskeiðar af olíu yfir meðalhita. Setjið laukinn á pönnuna og steikið í um 2 mínútur. Setjið kókosmjólk, engifer og hvítlauk í blandara og maukið. Setjið blönduna, ásamt kjúklingnum, á pönnuna og eldið í 7 til 10 mínútur, eða þar til kjúklingurinn er eldaður í gegn og sósan farin að þykkna. Takið þá til aðra pönnu og hitið tvær teskeiðar af olíu yfir meðalhita. Eldið hneturnar og sinnepsfræin í 2–3 mínútur. Bætið spínati í kjúklingablönduna og eldið í 1 mínútu. Deilið kjúklingnum í fjórar skálar og skreytið með kóríander og hnetublöndunni. Berið fram með hrísgrjónum eða naan-brauði.

Lífið er eins og konfektkassi

Blaut súkkulaðikaka klikkar ekki.

„Ég get aldrei gengið framhjá ísdeildinni án þess að ná í Ben & Jerry’s Chocolate Brownie Fudge-ís. Hann er voðalega góður. Ég er mikill aðdáandi eftirrétta, svo lengi sem þeir innihalda súkkulaði auðvitað. Það verður að vera súkkulaði. „Lífið er eins og konfektkassi“ – var það ekki sagt í einhverri bíómynd? Hér er einn ofboðslega góður eftirréttur sem slær alltaf í gegn þegar ég er með matarboð.“

Blaut súkkulaðikaka

Uppskrift af vefsíðunni Food & Wine

Hráefni:

115 g ósaltað smjör
170 g dökkt súkkulaði
2 egg
2 eggjarauður
50 g sykur
Smá salt
2 msk. hveiti

Aðferð:

Hitið ofninn í 230°C. Takið til 6 lítil form og smyrjið þau með smjöri og dustið hveiti í þau. Sláið á botninn á formunum til að ná sem mestu hveiti úr. Setjið formin á ofnplötu. Bræðið smjör og súkkulaði yfir vatnsbaði. Þeytið saman egg, eggjarauður, sykur og salt í meðalstórri skál þar til blandan hefur hvítnað og þykknað. Þeytið brædda súkkulaðið og smjörið þar til blandan er silkimjúk. Blandið eggjablöndunni og hveitinu varlega saman við með sleif eða sleikju og hellið deiginu í formin. Bakið í 12 mínútur, eða þar til toppurinn er bakaður en miðjan mjúk. Leyfið kökunum að kólna í formunum í 1 mínútu. Setjið síðan disk ofan á hverja köku fyrir sig og snúið þeim varlega við. Leyfið þessu að standa í nokkrar sekúndur og fjarlægið síðan formin. Berið strax fram.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Matur
20.12.2023

Grillaður hunangshjúpaður hestshaus með sinnepsfræjum, villihvítlauk og blóðbergi

Grillaður hunangshjúpaður hestshaus með sinnepsfræjum, villihvítlauk og blóðbergi
Matur
07.12.2023

Hátíðarbakkinn

Hátíðarbakkinn
Matur
04.11.2023

Djúsí beikonborgari með mozzarella fyllingu

Djúsí beikonborgari með mozzarella fyllingu
Matur
03.11.2023

Kjúklingalasagna sem allir elska

Kjúklingalasagna sem allir elska
Matur
20.10.2023

Salat með byggi, sætum kartöflum, graskersfræjum og hvítlauk

Salat með byggi, sætum kartöflum, graskersfræjum og hvítlauk
Matur
19.10.2023

Bragðmikil sveppasúpa

Bragðmikil sveppasúpa