YouTube-stjarnan Matt Stonie nýtur mikilla vinsælda á myndbandaveitunni, en eitt af nýjustu afrekum hans er að stúta risastórum mjólkurhristingi – nánar til tekið tæplega fimm lítrum af ísblöndunni.
Mjólkurhristingurinn samanstendur af tíu og hálfum vanilluhristingum. Í þessu ferlíki eru 325 grömm af fitu, 733 grömm af kolvetnum og 640 grömm af sykri.
Í meðfylgjandi myndbandi má sjá Matt reyna við hristinginn og er það vægast sagt sprenghlægilegt.