fbpx
Laugardagur 20.apríl 2024
Kynning

The House of Beauty: Verðlaunuð sem besta líkamsmeðferðarstofan 2022

Kynning
Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 22. mars 2022 09:38

Sigrún Lilja segir það ánægjulegt að sjá hversu mörgum meðferðir The House of Beauty hafa hjálpað, bæði þegar kemur að heilsu og útliti. Mynd/Eyþór

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Líkamsmeðferðarstofan The House of Beauty er einnar sinnar tegundar á Íslandi og hlaut nýverið verðlaun sem besta líkamsmeðferðarstofan 2022 hjá World Salon Awards. Í tilefni þess verður veglegur afsláttur gefinn af meðferðum og makeover pökkum hjá The House of Beauty.

„Við sérhæfum okkur því að bjóða upp á öflugar líkamsmeðferðir. Þar er okkar fókus, eingöngu árangursríkar meðferðir fyrir líkama. Við viljum einfaldlega vera best í því sem við erum að gera og setjum því alla okkar krafta í meðferðir fyrir líkamann. Að auki erum við stöðugt að bæta við okkur þekkingu til að fylgjast með þeirri hröðu þróun sem á sér stað í þessum geira. Það sinna margar öflugar stofur hefðbundnum snyrtimeðferðum og andliti en færri eru í því sem við erum að gera.“ segir Sigrún Lilja Guðjónsdóttir, eigandi The House of Beauty.

Sigrúnu Lilju Guðjónsdóttur þekkja margir sem stofnanda hönnunarmerkisins Gyðja Collection. Í dag rekur hún líkamsmeðferðarstofuna The House of Beauty sem er orðin einn af vinsælli viðkomustöðum íslendinga sem vilja bæta líkamlega formið hvort sem það á við heilsu eða útlit. Mynd/Sigtryggur Ari

Sigrún fór aðeins 24 ára út í rekstur hönnunarmerkisins Gyðju Collection. „Ég var ung og frekar blaut á bakvið eyrun þegar ég fór af stað en reynslan sem maður fékk var ómetanleg.“ Sigrún býr í dag yfir töluverðri reynslu af rekstri. „Ég lærði ýmislegt af því að byggja upp mitt eigið merki, bæði hvað á að gera en líka hvað á ekki að gera,“ segir hún og hlær. „Þetta var því gríðarlega lærdómsríkur skóli sem maður hefur í farteskinu.

Eftir að hafa misst heilsuna um tíma sjálf þá fyrst gerði ég mér grein fyrir hvað heilsan skiptir í raun öllu máli. Ég gerði allt sem ég gat sjálf til að ná upp heilsu á sem náttúrulegastan og öflugastan hátt og á þessum tíma kynntist ég nokkrum af líkamsmeðferðunum sem við bjóðum uppá í dag hjá The House of Beauty. Í dag þakka ég fyrir að vera orðin heilsuhraust og á ég það meðal annars líkamsmeðferðunum okkar að þakka,“ segir Sigrún.

The House of Beauty tekur á móti gestum sínum með notalegri og fallegri setustofu. Mynd/Eyþór

Opnaði korter í kóvid

Það var strax markmiðið að setja allan fókus á líkamsmeðferðir þegar stofan opnaði fyrir tæpum fjórum árum, „nánast korter í kóvid“ eins og Sigrún orðar það. „Núna þegar samkomutakmörkunum hefur verið aflétt er dásamlegt að finna hvernig allt er að lifna við. Það er eiginlega ótrúlegt hve vel hefur samt gengið hjá okkur í faraldrinum. Stærsta breytingin er eiginlega að það er komin örtröð í brúnkuklefann hjá okkur,“ segir Sigrún og hlær. „Það eru allt í einu alls konar viðburðir í gangi og fólk vill fá smá lit á kroppinn til að líta sem best út,“ bætir hún við.

Alþjóðleg verðlaun sem besta líkamsmeðferðarstofan

The House of Beauty hlaut nýverið verðlaun sem „Best Body Shaping Salon 2022“ frá World Salon Awards. „Þetta er í raun alveg ótrúlega magnað, enda vissi ég ekki að þessi verðlaun væru til. Við fengum póst frá þeim rétt eftir jólin þar sem okkur var tilkynnt að við værum tilnefnd til þessara verðlauna. Þeir báðu um ýmiss konar upplýsingar um okkar vinnu, hreinlæti, starfsemi í kóvid, fyrir og eftir myndir og margt fleira. Þeir eru svo með dómara í hverju landi sem tekur þetta út. Þann fyrsta mars var okkur svo tilkynnt að við hefðum hlotið verðlaunin. Við erum ótrúlega stolt af þessum árangri. Þetta er alveg frábært tækifæri fyrir stofuna og gefur okkur aukið búst til að vilja gera enn betur og halda áfram á þessari braut,“ segir Sigrún stolt.

Árangur viðskiptavina hefur þótt mikill og vakið eftirtekt

„Við þrýstum ekki á fólk að birta myndirnar af sér og fara margir í gegn með glæstan árangur sem aðeins þeir vita af. Það fylgir bara trúnaðinum og er algjörlega eðlilegt miðað við það sem við sérhæfum okkur í, sem eru líkamsmeðferðir. En svo er alltaf sumir sem eru til í að leyfa okkur að birta myndirnar og leyfa fólki að sjá hvað við erum að gera alla daga og okkur þykir mjög vænt um það,“ segir Sigrún.

Ein af árangurssögunum er frá Súsönnu Ósk
„Súsanna var svo yndisleg að leyfa okkur að deila hennar árangri. Hún byrjaði hjá okkur í meðferðum með það að markmiði að bæta heilsuna og daglega verki. Hún kom til okkar sárþjáð og gekk nærri með göngugrind eins og hún segir frá sjálf í viðtalinu sem má sjá fyrir neðan.

Árangurinn hennar er glæsilegur en núna mætir hún upprétt með bros á vör til okkar og full af orku í tímana sína. Munurinn frá því að hún gekk fyrst inn haltrandi og gat varla gengið upprétt er í raun ótrúlegur. Að auki hefur hún misst 91 cm í ferlinu sem er góður bónus,“ segir Sigrún og bætir við: „Sögur eins og Súsönnu eru ástæða þess að við erum alltaf tilbúin að leggja hart að okkur við að aðstoða viðskiptavini eftir fremsta megni til að ná hámarksárangri,“ segir hún.

Líkamsmeðferðartækin eru með mismunandi virkni

Hjá The House of Beauty eru í boði sjö mismunandi líkamsmeðferðir sem ætlað er að vinna á mismunandi markmiðum. Það eru Lipomassage Silklight, Velashape II, Msculpta Pro, Led húðmeðferð, Totally lazer Lipo og Fitform ásamt Mystic tan brúnkuklefanum. Sigrún segir að meðferðaraðilar The House of Beauty veiti viðskiptavinum góða ráðgjöf um það hvaða meðferðir séu áhrifaríkastar í samræmi við þau markmið sem hver og einn hefur.

„Kúnnahópurinn okkar nær alveg frá um 25 ára aldri og uppúr, við fáum í raun fólk til á okkar á öllum aldri. Viðskiptavinir skiptast aðallega í tvo hópa þegar þeir byrja hjá okkur. Annar hópurinn er að leitast eftir útlitslegum árangri að mestu, á meðan hinn hópurinn leitast eftir heilsufarslegum árangri. En svo er bónusinn við markmið viðkomandi að auki oft bætt heilsa og bætt útlit.

Við höfum líka sett saman hentuga meðferðarpakka sem henta fyrir fólk sem vill vinna á ýmsum algengum vandamálum. Þar má nefna tummy tuck, mini tummy tuck, brúðar makeover, fitness pakki og fleira. Pakkarnir einfalda hlutina fyrir viðskiptavini og með þeim getum við boðið fólki upp á betri kjör á meðferðunum þegar verslaður er heill meðferðarpakki.  Þá veit fólk líka hvað það er að ganga út í tímalega séð og fjárhagslega áður en það byrjar. Við hvetjum þó til þess að koma í mælingu og ráðgjöf til okkar og fá persónulega aðstoð frá meðferðaraðila. Við bjóðum öllum að koma í fría ráðgjöf án allra skuldbindinga.

Í ráðgjöfinni hittir þú meðferðaraðila sem skoðar þín markmið og ráðleggur þér með prógramm í samræmi við það. Suma langar að komast í form fyrir sumarið og aðra langar að líta vel út fyrir brúðkaupsdaginn. Sumir glíma t.d. við lausa húð á kviðnum eftir barnsburð eða þyngdartap á meðan aðrir vilja losna við staðbundna fitu sem þeir ná ekki að vinna á í ræktinni. Í sumum tilfellum er fólk að koma hingað sem síðasta úrræðið áður en það leggst undir hnífinn.

Lýtalæknar hafa einnig vísað töluvert á okkur og þá sérstaklega eftir aðgerðir sem er mjög ánægjulegt. Það getur sem dæmi verið sniðugt að koma til okkar í lipomassage sogæðameðferð, til að losa út vökva og bólgur eftir aðgerð. Einnig höfum við stundum hjálpað til ef það vantar eitthvern herslumun uppá eftir aðgerðir, ef það eru einhverjar misfellur eða slíkt sem dæmi.“

70,5 cm á 10 vikum

Þessi elskulega kona kom til okkar sem módel í tíu vikna pakka með sex vikna samkomubanns-pásu í millitíðinni. Hún byrjaði 18. september 2021 og kláraði því 15. janúar síðastliðinn.

Hennar markmið var að vinna á kvið og lærum ásamt húð á öllum líkamanum. Prógrammið sem við settum upp fyrir hana með þessum markmið í huga var 10 vikna pakki. Hún kom til okkar þrisvar í viku í eftirfarandi meðferðir:

  • 20 skipti af Totally Laser Lipo
  • 20 skipti af Fitform
  • 10 skipti af Lipomassage Silklight
  • 10 skipti af velashape

Tvisvar í viku kom hún í Totally Laser Lipo til að vinna á kviðfitu og fór beint á eftir í Fitform til að stinna og styrkja vöðva. Einu sinni í viku kom hún í Velashape þar sem unnið var á kvið og lærum. Hún fór svo beint á eftir í Lipomassage Silkligth þar sem unnið var á öllum líkamanum til að stinna, styrkja, þétta húðina og móta líkamann.

Árangurinn er glæsilegur en hún tapaði 70,5 cm í heildina og þar af 16,5 cm í mittinu. Að auki missti hún 15 kg sem er góður bónus.

Eru meðferðir The House of Beauty fyrir alla?

Sigrún segir það mikilvægt að meðferðaraðili og viðskiptavinur séu á sömu blaðsíðu hvað varðar væntingar. „Nei er í raun stutta svarið. Þumalputtareglan er sú að þinn árangur er okkar markmið. Ef tilskilinn árangur næst ekki fljótlega eftir að prógramm hefst er mikilvægt að láta meðferðaraðila vita svo hægt sé að gera breytingar á prógramminu. Við erum eins misjöfn og við erum mörg og líkami okkar bregst mismunandi við. Þá ræðum við saman og finnum út hvað veldur og breytum meðferðarprógrömmum ef þarf.

Fókusinn hjá okkur er ekki sá að viðskiptavinir missi ákveðinn fjölda kílóa, heldur aðstoðum við þá við að vinna á staðbundnum breytingum á fitusöfnun, slappri húð, bjúg, bólgum, slitum og ýmsu öðru. Við fókusum frekar á að árangur sjáist með berum augum og á myndum heldur en að missa ákveðinn fjölda kílóa, þrátt fyrir að það sé oft góður bónus með. Árangur byggist á samstarfi meðferða, meðferðaraðila og viðskiptavinar,“ segir hún.

Er gerð krafa um hreyfingu eða sérstakt mataræði?

„Við brýnum fyrir fólki að heilsan okkar og útlitið eru nátengd fyrirbæri. Því hvetjum við fólk til þess að stunda heilbrigðan lífstíl og gefum góð ráð og hvatningu meðfram meðferðunum hjá okkur, því það mun alltaf hjálpa til við endanlegan árangur. En við gerum þrátt fyrir það enga kröfu um líkamsrækt eða sérstakt mataræði enda geta einfaldlega ekki allir stundað líkamsrækt sem koma til okkar af heilsufarslegum ástæðum.

Mikilvægur hluti í upphafi meðferðarprógramms er heilsufarsskýrsla sem allir fylla út, og eins þegar komið er í mælingu og ráðgjöf. Heilsan spilar gífurlega stóran þátt í öllu sem við gerum og árangri þar með töldum. Til dæmis, ef einstaklingur safnar miklum vökva og bjúg, getur það verið vísbending um að sogæðakerfið virki ekki alveg sem skyldi. Sogæðakerfið spilar stóran þátt í því að losa út fitu sem líkaminn brennir. Ef viðkomandi vill til dæmis vinna á staðbundinni fitu og fer í leiser hjá okkur, en sogæðakerfið er stíflað, þá er hætt við að árangurinn verði töluvert hægari en hjá einstaklingi þar sem sogæðakerfið er uppá tíu. Í fyrra tilfellinu nær líkaminn ekki að losa sig vel við fituna sem við erum að brjóta niður. Því er mikilvægt fyrir okkur að reyna að átta okkur vel á stöðunni áður en viðkomandi byrjar hjá okkur, svo að það sé hægt að leiðbeina sem best með hvað muni virka vel fyrir viðkomandi áður en prógramm hefst. Í tilfelli sem þessu, ef að í ljós kemur að sogæðakerfið sé ekki uppá sitt besta, myndum við ráðleggja viðkomandi að byrja hjá okkur í sogæðameðferðinni Lipomassage Silklight til að koma því í gang, áður en við förum að vinna í að brjóta niður fitu.

Ef fólk er  búið að kaupa pakka á vefnum okkur þegar það kemur í fyrsta tímann eða ráðgjöf, en við mælum með breytingu eftir útkomu heilsufarsskýrlsu, þá er minnsta mál að breyta pakkanum eða aðlaga hann að viðkomandi. Pakkarnir hjá okkur renna ekki út og að auki er hægt að breyta meðferðum í þeim ef þörf er á. Mottóið okkar er „þinn árangur er okkar markmið“ og við viljum að fólk nái sínum markmiðum hjá okkur og því vinnum við statt og stöðugt að því, með öflugu meðferðinar okkar að vopni, góða samvinnu, raunhæfar væntingar og öflug tips í farteskinu til að hraðaárangri,“ segir Sigrún.

Undrameðferðin Lipomassage Silklight

„Lipomassage Silklight er ein öflugasta sogæðameðferð sem við höfum komist í tæri við og vinnur á svo mörgum levelum fyrir líkama okkar. Þessi meðferð vinnur frábærlega með flestum öðrum meðferðum sem við bjóðum uppá og er þar af leiðandi sú langvinsælasta. Meðferðin vinnur líka á appelsínuhúð og mótar líkamann.

Fólk hefur einnig í miklum mæli verið að koma í sogæðameðferðir til okkar vegna verkja í líkamanum, og höfum við fengið fregnir af því að hluti þeirra sem eru að koma, er jafnvel vegna þess að læknir hafi vísað á okkur. Það hefur sýnt sig og sannað að öflugar sogæðameðferðir eins og við bjóðum uppá, geta verið mjög áhrifaríkar fyrir gigtarsjúklinga og fólk sem þjáist af daglegum stoðverkjum. Margir sem koma til okkar hafa jafnvel gengið á milli lækna og reynt að finna lausn í mörg ár. En með reglulegum sogæðameðferðum hjá okkur, hafa margir hverjir náð að halda niðri verkjum, bæta svefn og í sumum tilfellum náð að sleppa lyfjum. Lyf gera vissulega sitt gagn, en mörg eru með aukaverkanir. Þá er betra að vinna á rót vandans sem í mörgum tilfellum er bólgusöfnun og stíflur í líkamanum og þar kemur Lipomassage meðferðin okkar við sögu.“

Nýjasta meðferðin til að byggja upp vöðva sem aldrei fyrr
Sigrún hefur nú bætt við glænýrri og byltingarkenndri meðferð sem nefnist Msculpta PRO. Meðferðin byggir upp vöðva og losar fitu á undarverðan hátt með rafsegulbylgjum.

„Við erum að elska nýjustu meðferðina okkar, Msculpta PRO og höfum verið að ná gríðarlegum árangri með uppbyggingu vöðva og mótun sem hefur ekki verið að nást í ræktinni. Við höfum líka verið að sjá þéttingu á kviðvöðvum með Msculpta Pro meðferðinni hjá konum eftir fæðingu, en við barnsburð er algengt að kviðvöðvarnir gliðni í sundur. Það hafa ekki verið margir kostir í þeirri stöðu og hefur leiðin þá jafnvel verið að leggjast undir hnífinn og láta sauma saman kviðvöðvana. En nú er komin önnur möguleg lausn með minna inngripi. Einnig höfum við séð mikinn árangur í mótun, upppbyggingu og stækkun á rassi og fleiri stöðum sem fólk gengur oft hægt að byggja upp í ræktinni.“

Einstakt tilboð í tilefni verðlaunana til miðnættis á sunnudaginn – 30% afsláttur af ÖLLU

Í tilefni af því að The House of Beauty voru verðlaunuð sem „Best Body Shaping Salon 2022“ hjá World Salon Awards hafa þau sett í loftið sannkallað vinningstilboð. Áhugasamir eru því hvattir til að hafa hraðar hendur til að gera góð kaup á meðferðum því að þessu einstaka tilefni er hvorki meira né minna en 30% afsláttur af öllum meðferðum og makeover pökkum til miðnættis á sunnudaginn 27. mars.

Áhugasamir geta kynnt sér tilboðið betur á vefsíðu The House of Beauty.

Fyrir þá sem vilja bóka sér tíma í fría mælingu og ráðgjöf hjá sérfræðingi geta gert það á einfaldan hátt á bókunarsíðu The House of Beauty.

Á instagramsíðu stofunnar má sjá fjölda fyrir og eftir mynda viðskiptavina The House of Beauty.

Árangur á átta vikum

Þessi kona kom til okkar tvisvar í viku í átta vikur. Hún byrjaði í Totally Laser Lipo með àherslu á magasvæðið og fór í fitform beint á eftir til að stinna og styrkja vöðva og fullkomna árangurinn

Ótrúlegur munur á sex vikum

Þessi glæsilega kona kom til okkar sem módel í sex vikna pakka. Hún byrjaði 24. janúar og kláraði 4. mars og árangurinn er stórglæsilegur. Pakkinn hennar innihélt:

  • 12 skipti í Totally Laser Lipo
  • 6 skipti í fitform
  • 6 skipti í Msculpta
  • 6 skipti í Velashape
  • 6 skipti í Lipomassage

Hún kom til okkar í Totally Laser Lipo 2x í viku til að vinna á staðbundinni fitu á kvið og fór fyrstu þrjár vikurnar í Msculpta beint á eftir til að þétta, grenna og móta kviðinn eins vel og kostur er. Síðari þrjár vikurnar kom hún svo í fitform beint á eftir lasernum til að vinna á vöðvastyrkingu og húðþéttingu á öllum líkamanum. Að auki kom hún svo 1x í viku í Velashape þar sem unnið var á að þétta og stinna lausa húð á lærum og höndum og fór svo í Lipomassage Silkligth beint á eftir þar sem allur líkaminn var tekinn.

Áhugasamir geta kynnt sér tilboðið betur á vefsíðu The House of Beauty.

Fyrir þá sem vilja bóka sér tíma í fría mælingu og ráðgjöf hjá sérfræðingi geta gert það á einfaldan hátt á bókunarsíðu The House of Beauty.

Á instagramsíðu stofunnar má sjá fjölda fyrir og eftir mynda viðskiptavina The House of Beauty.

Lokað er fyrir athugasemdir
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum