fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Kynning

Gólftækni: Steypan er sterkasta gólfefnið, sé hún rétt unnin.

Kynning
Hildur Hlín Jónsdóttir
Sunnudaginn 22. september 2019 18:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Gólftækni er verktaki og innflytjandi efna til viðgerða og frágangs steyptra gólfa. Félagið var stofnað af feðgunum Ásgeiri Halldórssyni og Kristófer Atla Ásgeirssyni utan um hugmyndina um betri gólf til lengri tíma. Markmið Gólftækni er að vera með bestu lausnirnar og bestu mögulegu efnin hverju sinni til að geta boðið viðskiptavinum sterkari og endingarbetri gólf. Hjá Gólftækni liggja áherslurnar aðallega á iðnaðar-, lager- og verslunargólf þar sem ekki er gert ráð fyrir að leggja sérstök gólfefni yfir.

Velja þarf frágang gólfa eftir álagi.

 

Sérhæfing í steyptum gólfum

Gólftækni sérhæfir sig í vinnslu steyptra gólfa þar sem fyrirtækið getur komið inn í ferlið á ýmsum stigum. Þegar fyrir liggur hvernig lokaútkoman á að vera geta þeir tekið að sér gólfið og klárað það á þann hátt sem óskað er. Annaðhvort er steypan þá lögð í plötuna og fullunnin eða þeir koma að steyptum gólfum, gömlum eða nýjum, og vinna upp í fullklárað gólf.

„Þegar við tökum að okkur gólf frá grunni, veljum við steypublönduna út frá þeirri notkun sem mun verða á viðkomandi gólfi,“ segir Ásgeir Halldórsson. Það gerir þeim kleift að vinna gólfið eftir þeirra aðferðum svo að útkoman verði sú sem sóst er eftir. Oftast er þá um að ræða auknar kröfur af einhverju tagi s.s. um sléttleika yfirborðs.

Pólerað gólf í flugskýli Icelandair.

Gólftækni vinnur mjög mikið í yfirborðsfrágangi gólfa, bæði í nýbyggingum og í eldra húsnæði. Í nýjum húsum er oftast um að ræða póleringu gólfa þar sem yfirborð steypunnar er slípað, það hert og því lokað.

Í eldri húsum hafa þeir svo komið að viðgerðum og endurnýjun gólfa. Oft er um að ræða mjög illa farin gólf. Þau geta verið sprungin, brotin, slitin, skökk og hreinlega ónýt. Í sumum tilfellum er hægt að lappa upp á gólfin með lágmarks viðgerðum en ending slíkra gólfa verður þó aldrei viðunandi, en þetta getur hentað í ákveðnum tilfellum. Heildarviðgerðir, þar sem gert er við sprungur og skemmdir, geta verið góður kostur, einkum á lagergólfum þar sem útlitið skiptir ekki meginmáli.

Mjög skemmt gólf.

 

Nýjung á Íslandi

Gólftækni býður einnig upp á þunnt ásteypulag með Neodur-efnum frá Korodur í Þýskalandi. Þetta er nýjung hér á landi en hefur marga góða kosti og hefur þegar verið lagt á yfir 500 milljón fermetra erlendis. Ásteypulagið er einungis um 10 mm þykkt en skilar mjög sterku yfirborði; um 70 N/mm2 í þrýstiþoli, sem samsvarar C 70 steypu. Með því að gera við skemmd gólf og leggja Neodur-ásteypulag yfir verður gólfið eins og nýtt.

Einnig er hægt að pólera Neodur-efnin og með því eykst yfirborðsstyrkur þeirra. Þessi gólf útheimta lítið sem ekkert viðhald, eru mjög auðveld í þrifum og endast að jafnaði mun lengur en upprunalegu gólfin. Vegna þess hve yfirborð Neodur-efnanna er þétt í sér er rakadrægni þeirra mjög lítil og því henta þau vel í rýmum þar sem talsvert vatn er viðvarandi.

Terrazzo gólf í vinnslu.

„Gólftækni flytur einnig inn ýmis önnur sérhæfð efni sem hjálpa okkur að fá fram betri gólf; og við erum stöðugt að leita að og bæta við nýjum.“

Frá Korodur bjóða þeir til dæmis upp á mjög sterk tilbúin efni í Terrazzo gólf í mörgum litum.

Gólftækni býður upp á ráðgjöf og úttekt á gólfum þar sem markmiðið er að leggja fram tillögur að hagkvæmasta og umhverfisvænsta kostinum. Þeir vinna í því sambandi líftímakúrfur mismunandi gólfefna miðað við notkun húsnæðisins. Of oft er farið af stað með ódýrustu lausnina hverju sinni sem oft reynist þó vera dýr á líftíma gólfefnisins. Gólftækni leggur áherslu á að gera raunhæft mat á þessum kostnaði.

Gólftækni er vel tækjum búið og er m.a. með fjarstýrðar slípivélar.

 

 

Hægt er að hafa samband við Gólftækni í gegnum heimasíðuna þeirra golftaekni.is, en auk þess má finna upplýsingar um vörurnar þeirra og er heimasíðan uppfærð reglulega Einnig er hægt að hafa samband við okkur í síma 519-5190

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum