fbpx
Þriðjudagur 23.apríl 2024
Kynning

Þak.is: Reynsla og þekking er besta auglýsingin

Kynning
Jóhanna María Einarsdóttir
Fimmtudaginn 22. ágúst 2019 14:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fyrirtækið Þak.is var stofnað 2008 og í dag starfa fjórir iðnaðarmenn með gífurlega reynslu hjá fyrirtækinu. „Við þjónustum einstaklinga, húsfélög sem og stærri eða minni fyrirtæki um land allt,“ segir Ólafur Ragnar Ólafsson, eigandi Þak.is.

Þak.is

„Þak.is býður upp á alla þá þjónustu sem viðkemur húsaviðhaldi innan- sem utandyra. Þá tökum við að okkur breytingar á heilum íbúðum innandyra og leggjum t.d. parket, endurnýjum eldhús eða baðherbergi, sjáum um flísalögn, málun, uppsetningar eða niðurrif á veggjum og fleira.

Þak.is

Utandyra erum við í endurnýjun eða viðgerðum og sjáum t.d. um þakskipti, endurnýjun þakrenna, bárujárnsklæðningar og aðrar veggklæðningar. Einnig erum við í þakmálun, setjum upp og gerum við þakkanta, framkvæmum gluggaskipti, setjum upp blikk flassningar, erum í pallasmíði og margt, margt fleira.“

Þak.is

Er þakið þitt í lagi?

Það er alltaf mikilvægt fylgjast með þakinu; hvort það sé kominn tími á að skipta um það eða lengja endingartíma þaksins með þakmálun. Þak.is býður upp á mat á því og öllu öðru, viðskiptavinum sínum að kostnaðarlausu.

Þak.is

„Í þakklæðningar notum við mikið til bárujárn úr alusinki eða stallað ál, eftir því hvað kúnninn vill. Þessi efni hafa sýnt og sannað hvað þau eru endingargóð og duga vel í íslenskri veðráttu og það er þess vegna sem við notum þau. Við lendum því miður oft í því að endurvinna verk eftir verktaka sem hafa ekki þekkingu og skila frá sér verkum hálfkláruðum eða í verra ástandi en áður en þeir tóku við því. Þetta er sorgleg staðreynd, en sýnir bara að það borgar sig að skipta við aðila sem kunna til verka,“ segir Ólafur.

Þak.is

Nánari upplýsingar má nálgast á facebooksíðunni þak.is.

Heimasíðan thak.is er lokuð vegna breytinga.

Hafðu samband í síma 699-6980.

Netpóstur: thak@thak.is

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum