fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Kynning

EUKANUBA – frumkvöðlar í 50 ár!

Kynning
Jóhanna María Einarsdóttir
Laugardaginn 23. mars 2019 08:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Smáratorg – Bíldshöfði – Fiskislóð – Helluhraun Hfj – Vefverslun
Gæludýr.is rekur 4 lágvöruverðsverslanir með gæludýravörur á höfuðborgarsvæðinu ásamt vefverslun sem þjónustar allt landið. Fyrirtækið hefur verið starfrækt síðan 2009 og skapað virka samkeppni í gæludýravörum. „Við höfum verið ótrúlega heppin með að hafa fengið frábærar vörur á góðu verði frá okkar helstu birgjum en það má alveg segja að okkar mesti styrkleiki sé starfsfólkið okkar. Þau hafa ótrúlega mikinn áhuga á gæludýrum og leggja sig mikið fram um að viða að sér þekkingu um bæði gæludýr og gæludýravörur,“ segir Ingibjörg Salóme, framkvæmdastjóri fyrirtækisins.

 

Eukanuba fagnar í ár 50 ára afmæli. Það eru fáir fóðurframleiðendur sem geta státað af samfelldri 50 ára sögu en Eukanuba hefur ávallt lagt sig fram um að veita hundum og köttum bestu næringu sem völ er á. Frumkvöðulsstarf og rannsóknir hafa einkennt starf Eukanuba þessa áratugi og er fyrirtækið enn 50 árum seinna að bæta uppskriftirnar og reksturinn. Eukanuba er þróað af næringarfræðingum, samþykkt af dýralæknum og mælt er með því af ræktendum.

Breytt og bætt uppskrift

Í fyrra kynnti Eukanuba uppfærðar uppskriftir í kjarnalínunni. Uppfærslan felst helst í auknu magni af ferskum kjúklingi í uppskriftunum, nýju formi á bitunum og nýju unghundafóðri fyrir stærri tegundir. Meira magn af ferskum kjúklingi skilar sér í mun betra bragði en áður. Nýtt sexhyrnt form á bitunum gerir auðveldara að húða þá með DentaDefense steinefninu en það getur dregið úr uppsöfnun tannsteins um allt að 70%.


Eukanuba kynnti einnig í fyrra nýtt unghundafóður fyrir stærri tegundir. Stærri hundar eru mun lengur að vaxa en smærri tegundir og því er mikilvægt að sérsníða næringuna að vaxtarhraðanum. Þetta unghundafóður tekur þá við af hvolpafóðri á milli 12 og 14 mánaða aldurs og er notað fram að tveggja ára aldri.

Vistvæn framleiðsla

Eukanuba er framleitt í Hollandi og kemur allt hráefni í fóðrið frá Evrópu (fyrir utan lambakjötið sem kemur frá Nýja-Sjálandi). Fyrirtækið leggur mikinn metnað í að reyna ekki aðeins að framleiða hunda- og kattafóður sem fer fram úr væntingum eigenda, heldur einnig að framleiðslan raski vistkerfinu eins lítið og hægt er. Meðal þess sem Eukanuba hefur gert til að draga úr áhrifum sínum á vistkerfið er að stór hluti orkunnar sem notuð er, kemur úr vindmyllu sem staðsett er við verksmiðjuna í Hollandi og er því endurnýjanleg orka. Eukanuba notast einnig við náttúrulegar leiðir til að viðhalda umhverfi sínu og má þar nefna að kindur eru notaðar í stað sláttuvéla til að halda grasinu á svæðinu í skefjum.

Okkar reynsla af Eukanuba

Gæludýr.is hefur verið með Eukanuba í sölu í á þriðja ár eða síðan það var aftur kynnt á íslenskum markaði. „Síðan við hófum sölu á Eukanuba frá nýjum umboðsaðila á Íslandi hefur salan aukist mjög hratt. Hundaeigendur hafa tekið fóðrinu fagnandi enda þekkt það af góðu frá fyrri tíð. Nýir notendur hafa einnig sýnt fóðrinu mikinn áhuga og mjög góð reynsla hefur fengist á skömmum tíma. Ræktendur hafa einnig verið fljótir að grípa fóðrið enda margir sem þekkja það að utan og margir heimsþekktir ræktendur hafa notað Eukanuba í fjölda ára.


Helsta umkvörtunarefni eigenda hér áður fyrr voru bragðgæði en þau hafa verið bætt verulega í nýju uppskriftunum og því frábært tækifæri fyrir eigendur að prófa fóðrið aftur. Við höfum svo frá upphafi boðið smakkábyrgð á fóðrinu þannig að ef hundur vill ekki éta fóðrið eða þrífst ekki nógu vel af því að mati eigenda má hreinlega skila pokanum til okkar og fá endurgreitt (líka opnum pokum).“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum