Á morgun, laugardaginn 5. október, opnar SPORT24 nýja og glæsilega 750 fm íþróttavöruverslun að Miðhrauni 2 Garðabæ, stutt frá Crossfit XY. Verslunin opnar stundvíslega kl. 11:00.
Í tilefni opnunarinnar verður 24% opnunarafsláttur og frábær opnunartilboð á nýjum vörum frá öllum helstu íþróttavörumerkjum; NIKE, Champion, Adidas, Puma, Endurance, Hummel, Fila og margt fleira. Einnig eru kuldagallar á krakka á ótrúlegu verði, eða frá 6.900 kr. Það verður því hægt að gera afar hagstæð kaup.
SPORT24 er dönsk verslunarkeðja sem selur íþróttavörur og opnaði fyrsta útibúið á Íslandi í Reykjavík, október 2018. Næsta útibú var opnað á Akureyri og nú er komið að því að opna þriðju verslunina.
„Við erum mjög stolt að opna þriðju verslunina á aðeins einu ári og það er ótrúlegt hvað fólk hefur tekið vel á móti okkur. SPORT24 er dönsk verslunarkeðja með 186 útibúum sem býður upp á fyrsta flokks íþróttavörur á afar hagstæðu verði. Við fáum allar okkar vörur frá SPORT24 í Danmörku og getum í mörgum tilfellum boðið upp á hagstæðasta verðið á íþróttafatnaði á Íslandi. Það er ekkert skrítið að SPORT24 sé vinsælasta íþróttavöruverslunin á Íslandi. Fólk kemur í SPORT24 því það veit að það gerir hagstæð kaup hjá okkur,“ segja forsvarsmenn SPORt24 á Íslandi
Komdu og gerðu frábær kaup í SPORT24 Miðhrauni 2, Garðabæ.
Fylgstu með á Facebook: SPORT24 Reykjavík
Opnunartími SPORT24 Miðhrauni 2
Virka daga 11-18
Laugardaga 11-18
Sunnudaga 13-18
Sýnishorn af þeim vörum sem verða í boði. Gerðu hagstæð kaup á opnunartilboði SPORT24 á morgun!