Brimborg með þrjá bíla tilnefnda til Bíls ársins 2019
Þrír bílar frá Brimborg í úrslitum!
Þær frábæru fréttir voru að berast að þrír bílar af vörumerkjum Brimborgar eru komnir í úrslit fyrir val á Bíl ársins 2019. Það er mikill heiður að fá þessa tilnefningu enda um virt verðlaun að ræða. Úrslit verða tilkynnt í mars 2019.
Bílarnir sem um ræðir eru Citroën C5 Aircross og Peugeot 508 frá PSA Group og Ford Focus.
Citroën C5 Aircross er væntanlegur í upphafi næsta árs. Hann er öflugur og ber af í hönnun og fjölbreytileika. Citroën C5 Aircross er útbúinn stærsta skotti í sínum flokki frá 580 til 720 l. Citroën Advanced Comfort býður upp á meiriháttar nýjungar eins og Progressive Hydraulic Cushions fjöðrunarkerfið og Advanced Comfort sæti. Aftari sætin eru öll á sleðum, stillanleg og ótrúlega auðveld í notkun.
Nýr Peugeot 508 verður frumsýndur í janúar. Nýr Peugeot 508 er sannkallaður lúxusbíll sem gerir engar málamiðlanir í hönnun og gæðum og er búinn nýjustu tækni þannig að hver ökuferð verður einstök upplifun. Stíll Peugeot 508 er fágaður og stílhreinn. Hann er sportlegur og einstaklega glæsilegur. Útlínur hans, nýr framendi – ljós og grill undirstika nýsköpun og djarfa útlitsbreytingu.
Glæsilegur nýr Ford Focus er kominn til okkar og er í sýningarsölum okkar í Reykjavík og Akureyri. Alveg nýr Ford Focus er sá allra glæsilegasti Ford Focus bíllinn til þessa og hefur fengið frábæra dóma út um allan heim. Nýr Ford Focus markar nýja tíma hvað varðar tækni, þægindi, pláss og akstursupplifun í flokki fólksbíla.
Við erum á þremur stöðum! Mazda, Citroën og Peugeot á Bíldshöfða 8 í Reykjavík. Ford og Volvo á Bíldshöfða 6 í Reykjavík og með öll okkar bílamerki hjá Brimborg við Tryggvabraut 5 á Akureyri.
Komdu í Brimborg! Það er opið virka daga frá 9-17 og laugardaga milli kl. 12-16. Við eigum rétta bílinn fyrir þig!