fbpx
Fimmtudagur 18.apríl 2024
Kynning

Ætlar að mynda ónæmi gegn skötufnyknum!

Kynning
Jóhanna María Einarsdóttir
Laugardaginn 22. desember 2018 10:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Jónas Sig heldur útgáfutónleika í Gamla Bíói 23. des. ásamt fríðum flokki

Okkar landsþekkti Jónas Sig var að gefa út plötuna Milda hjartað. Nafnið segir hann koma út frá hnattrænni þörf á almennri mildi sem gæti mögulega bjargað heiminum. Ásamt fríðu föruneyti mun hann halda heljarinnar útgáfutónleikaveislu í Gamla Bíói á Þorláksmessu og er hann að sögn gífurlega spenntur að fá að spila nýtt efni fyrir eftirvæntingarfulla tónleikagesti. Blaðamaður tók Jónas Sig. tali og spurði hann fáeinna spurninga. 

Jónas Sig


Til hamingju með plötuna! Viltu segja aðeins frá henni?

„Takk! Ég er búinn að vera að vinna þessa plötu síðustu tvö ár í góðri samvinnu við vin minn, Ómar Guðjónsson, sem stýrði upptökum. Mig langaði svo að gera „singer/songwriter“-plötu eins og menn gerðu hérna áður fyrr þar sem aðaláherslan var á sterkar lagasmíðar, frásögn og ríkan boðskap. Helst tekið upp sem mest í heilu lagi með hljómveit þar sem áhersla er lögð á lifandi spilamennsku og mikið pláss fyrir sönginn/sögumann. Að auki hefur mig lengi langað að vinna með þetta þema. Þessa hugmynd um mildi sem ég tel vera orðið mikilvægasta fyrirbærið sem gæti mögulega bjargað mannkyninu og með því heiminum okkar. Að temja sér mildi og hlýju. Að það sé ekki veikleiki að vera mildur með opið hjarta. Að fólk geti verið sterkt en á sama tíma með milt og opið hjarta. Platan er að skoða þetta út frá mismunandi sjónarhornum,“ segir Jónas.

Lagið „Dansiði“ á plötunni Milda hjartað með Jónasi sig.


Mega aðdáendur búast við sambærilegu efni á nýju plötunni?

„Ég myndi segja að hljómurinn væri frábrugðinn. Ég hef áður unnið meira í stúdíóinu við að leggja niður rásir til að gera hljóminn eins þéttann og feitan og mögulegt er. Stundum hef ég yfirhlaðið lögin í framleiðslunni af því að mér finnst það gaman og kann að meta svoleiðis vinnubrögð. Þannig getur myndast mikill kraftur. Þá hef ég líka áður unnið mikið með sterkan brasshljóm og kraftmikla stóra hljómsveit undir nafninu „Ritvélar framtíðarinnar“. Nýja platan er hins vegar klassísk sólóplata, svolítið í ætt við fyrstu plötuna sem ég gerði undir eigin nafni. Hún er strípaðri og einfaldari. Það er auðveldara að setja hana á fóninn og taka hana beint inn í hjartað. Ég hugsaði hana allavega þannig. Ég vona að það sé að virka.“

Milda hjartað

Hvernig hefur fólk tekið við sér og hefur platan selst vel fyrir jólin?

„Sölutölur í dag eru töluvert öðruvísi en maður átti að venjast hérna áður í plötusölu. En í staðinn þá er komin mikil dreifing á netinu eins og Spotify og annað. Ég verð að segja að platan hefur fengið frábærar viðtökur, framúrskarandi góða umfjöllun og mikið er verið að hlusta og tékka á henni. Það verður svo gaman að sjá hvernig það þróast áfram með tímanum.“

Nú verða útgáfutónleikar í Gamla Bíói þann 23. des. Er ekki gífurleg eftirvænting í liðinu?

„Jú, heldur betur! Sérstaklega í ljósi þess að við ákváðum að halda einu tónleikana okkar í bænum, sjálfa útgáfutónleika plötunnar, á Þorláksmessu. Við höfum hingað til verið með létta og vel heppnaða tónleika á Hard Rock Café á Þorláksmessu sem hefur selst upp á síðustu ár, en ákváðum að breyta til núna í kjölfar nýju plötunnar og slá saman í útgáfutónleika. Þá þurftum við auðvitað að færa okkur í annað rými með herlegheitin, þannig að þessir tónleikar fara fram í Gamla Bíói. Vitandi hversu margir bíða spenntir eftir tónleikum í bænum þá er komin mikil tilhlökkun í gengið fyrir þessum tónleikum.“

 


Hvernig ætlið þið að tækla skötufnykinn frá gestum? 

„Ætli við skellum okkur ekki á bara á skötuhlaðborð sjálfir og myndum skötufnyks-ónæmi!“

 

Verða þetta ekki flottir tónleikar?

„Við lofum því. Án gríns! Við höfum þvælst um landið undanfarið og erum búnir að spila útgáfutónleikaröðina í Þorlákshöfn, Karlsstöðum í Berufirði, Egilsstöðum, Grindavík, Akranesi, Akureyri og Siglufirði. Þetta eru auðvitað allt ægifagrir staðir og langflestir með gullfallegt útsýni yfir hafið sem er gríðarlega stór hluti af menningarlífi hvers samfélags. Það er mikil spilagleði og falleg vinátta í hópnum og við erum mjög spennt að spila í Gamla Bíói. Það er síðan toppurinn að eiga þessa upplifun og deila með tónleikagestum hvert sinnið.“

Nældu þér í miða á útgáfutónleika Jónasar Sig á midi.is sunnudaginn 23. desember kl. 22.00 í Gamla Bíói.

 

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum