fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Kynning

BYKO einn af eftirsóknarverðustu vinnustöðum í Evrópu

Kynning
Ritstjórn DV
Föstudaginn 9. september 2022 13:53

Sigurður Pálsson forstjóri BYKO veitti verðlaununum viðtöku í gærkvöldi ásamt sex öðrum starfsmönnum á hátíðarsamkomu Great Place To Work í Feneyjum.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

BYKO hlaut á dögunum viðurkenningu sem einn af eftirsóknarverðustu vinnustöðum í Evrópu í hópi meðalstórra fyrirtækja.

Tölvuleikjafyrirtækið CCP hlaut einnig viðurkenningu í sama flokki, og auglýsingastofan Sahara hlaut viðurkenningu í hópi lítilla fyrirtækja. BYKO hefur að undanförnu unnið með alþjóðlega ráðgjafarfyrirtækinu Great Place to Work að því að gera upplifun starfsfólksins í vinnunni eins góða og hægt er. Einn liður í því er viðamikil könnun sem er lögð fyrir starfsfólkið um líðan þess í vinnu, en sambærilegar nafnlausar kannanir voru lagðar fyrir um 1,4 milljónir starfsfólks í meira en þrjú þúsund fyrirtækjum 37 Evrópulanda.

„Án starfsfólksins værum við einfaldlega ekkert“

Sigurður Pálsson forstjóri BYKO veitti verðlaununum viðtöku í gærkvöldi ásamt sex öðrum starfsmönnum á hátíðarsamkomu Great Place To Work í Feneyjum. Meira en 500 manns starfa hjá BYKO, en eitt af því sem lá til grundvallar viðurkenningarinnar var að níu af hverjum tíu starfsmönnum sögðust mæla með BYKO sem vinnustað. „Án starfsfólksins værum við einfaldlega ekkert. Á bak við árangur er fólk!“ sagði Sigurður Pálsson þegar hann veitti verðlaununum viðtöku. „Við erum stolt af þessum stóra hópi starfsfólks sem fór nú síðast með okkur í gegnum ótal áskoranir Covid-faraldursins sem gríðarlega sterk og órjúfanleg heild.“

Alþjóðlegt greiningar- og ráðgjafarfyrirtæki

Great Place to Work er alþjóðlegt greiningar- og ráðgjafarfyrirtæki sem hjálpar fyrirtækjum að ná betri árangri með því að einbeita sér að starfsreynslu hvers starfsmanns. Fyrirtækið starfar í yfir 60 löndum og veitir árlegar viðurkenningar fyrir eftirsóknarverðustu vinnustaðina hjá litlum, meðalstórum og stórum fyrirtækjum. Einnig veitir það viðurkenningar fyrir eftirsóknarverðustu vinnustaðina með tilliti til fjölbreytileika.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum