Við hjá Pizzunni erum hrikalega spennt að kynna nýja vöru á matseðlinum! Eftir langt og strangt þróunartímabil er þessi upprúllaða kanildásemd loksins mætt á matseðilinn okkar í fjórum mismunandi útgáfum, hver annarri betri.
Nú er hægt að fá hjá Pizzunni nýbakaða kanilsnúða með karamellukremi, karamellukremi og daim, klassískan með rjómaostakremi og svo að lokum með rjómaostakremi og oreo.
Alltaf nýbakaðir og ljúffengir
Snúðarnir eru alltaf nýbakaðir, stökkir að utan og dúnamjúkir að innan. Þeir eru fullkomnir undir tönn, sætir og fáránlega góðir. Eins og pizzurnar okkar þá eru snúðarnir gerðir eftir pöntunum og bakaðir á staðnum. Pizzan þín fer inn í ofninn og snúðarnir þínir rétt á eftir til þess að tryggja að snúðarnir þínir séu alltaf eins ferskir og mögulegt er.
Fólkið kann gott að meta
Snúðarnir fást á öllum átta sölustöðum Pizzunnar og viðtökurnar hafa farið langt fram úr björtustu vonum. Snúðarnir hafa algerlega slegið í gegn á Akureyri þar sem fólk er að kaupa sér heita snúða og kippa með sér í fjallið. Einnig hafa viðtökurnar verið frábærar í Litlatúni í Garðabæ en Stjörnumenn kunna svo sannarlega gott að meta og þar eru snúðarnir frá Pizzunni engin undantekning.
Daim og karamellu snúðurinn hefur verið vinsælastur til þessa en við erum viss um að klassíski kanilsnúðurinn með rjómaostakreminu muni koma sterkur inn þegar líða tekur á sumarið.
Oreo unnendur munu svo eflaust elska rjómaosta- og oreo snúðana og við erum viss um að þeir munu slá einhver met þegar oreo samfélagið heyrir af þessu. Kanilsnúðarnir, hvernig sem þeir eru toppaðir, er einfaldlega besta leiðin til að slá botninn í góðri máltíð.
Nýbakaðir kanilsnúða í veisluna
Við hjá Pizzunni höfum líka fengið töluvert af magnpöntunum fyrir fermingarnar, útskriftir og aðrar veislur, enda eru kanilsnúðar eitthvað sem sameina okkur öll, hvort sem það er amma, afi, skrýtna frænkan, fótboltafrændinn eða börn systkina þinna. Það elska einfaldlega allir kanilsnúða!
Fyrir stærri pantanir má hafa samband við pizzan@pizzan.is.
Pantaðu pizzu, kanilsnúða eða annað góðgæti á pizzan.is eða í síma 578-8888.