fbpx
Þriðjudagur 23.apríl 2024
Kynning

Blue Lagoon Challenge haldið í 25. skiptið þann 12.júní 2021

Kynning
Jóhanna María Einarsdóttir
Föstudaginn 4. júní 2021 11:57

Grófur malarkafli á Djúpavatnsleiðinni. Mynd/Hafsteinn Gunnar Jónsson

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þann 12.júní kl. 16:00 verður blásið í lúðra og stórum hópi hjólara hleypt af stað í eitt vinsælasta fjallahjólamót ársins, BLUE LAGOONE CHALLENGE en það er nú haldið í 25. sinn. Bláa lónið er aðal styrktaraðili mótsins og býður öll þátttakendum upp á veitingar og í lónið að móti loknu auk þess sem allir verða verðlaunaðir með óvæntum glaðningi.

„Við erum gríðarlega spennt að fá að ræsa hópinn af stað þar sem ekkert mót var í fyrra sökum covid. Stemmingin er einstök í mótinu og skemmtilegt hversu breiður hópurinn er. Hjólreiðafólk af öllum getustigum tekur þátt, elite keppnishjólreiðafólk, vinnustaðahópar, áhugafólk og allt þar á milli. Svo sameinumst við öll í Bláa lóninu eftir mótið og látum átökin líða úr okkur. Það er áskorun en ekki síður afrek, að ljúka hinni 60 kílómetra leið sem liggur frá Völlunum í Hafnarfirði og að Svartsengi í Grindavík. Markmiðin eru misjöfn hjá keppendum, sumir keppast um 1.-3. sæti en einnig eru margir að keppa við sjálfan sig, ná að hjóla þetta í fyrsta sinn eða keppa við eigin tíma frá því áður. Við skorum á ykkur öll að koma og vera með, það eru enn til miðar svo nú er bara að skrá sig.“ Segir Kolbrún Dröfn, formaður Hjólreiðafélags Reykjavíkur.

Kolbrún Dröfn Ragnarsdóttir formaður Hjólreiðafélags Reykjavíkur.

Startað verður í hollum en leiðin liggur frá Völlunum í Hafnarfirði um Djúpavatnsleiðina, í gegnum Grindavík og inn að Bláa lóninu. Leiðin er malbikuð að hluta, en einnig fer hún um grófan malarveg og um ljúfa moldarslóða og sand. Heildar hækkun á leiðnni er um 600 metrar og þar munar mest um Ísólfskálabrekkuna. Þegar þangað er komið er um 40km lokið og því farið að síga í hjá all flestum.

Keppendur fara yfir ráslínu í Blue Lagoon Challenge 2019. Mynd/Bláa lónið
Keppendur hjóla eftir Hvaleyrarvatnsvegi í Blue Lagoon Challenge 2019. Mynd/Kristinn R. Kristinsson.
Djúpavatnsleiðin er draumkennd og ægifögur. Mynd/Bláa lónið

Brautarmet karla er 1 klst og 38 mínútur en það er Ingvar Ómarsson Íslandsmeistari í hjólreiðum sem setti það árið 2019 og var meðal hraðinn á honum í brautinni 36,56 km/klst.

Brautarmet kvenna er 1 klst og 53 mínúta og er það Karen Axelsdóttir sem á það met frá því árið 2019. Meðalhraði Karenar var 31,6 km/klst.

1.-3.sæti kvenna í Blue Lagoon Challenge 2019. Frá vinstri Hrefna Sigurbjörg Jóhannasdóttir, Karen Axelsdóttir og Anna Kristín Pétursdóttir. Mynd/Bláa lónið
1.-3.sæti karla í Blue Lagoon Challenge 2019. Frá vinstri Kristinn Jónsson, Ingvar Ómarsson og Hafsteinn Ægir Geirsson. Mynd/Bláa lónið

„Brautarmetin hafa fallið ár frá ári en veður og vindar hafa þó töluverð áhrif á tímann. Það er hins vegar hægt að sjá á þessu að hjólreiðafólk á Íslandi hefur bætt sig töluvert á milli ára og búnaðurinn hefur einnig tekið miklum framförum. Gaman verður að sjá hvernig tímarnir verða í ár og hvort brautarmet verið slegið aftur.“ segir Kolbrún.

Stemning í tjaldinu að móti loknu. Mynd/Bláa lónið
Upphitun fyrir mótið. Mynd/Bláa lónið
Hópur frá Hjólreiðafélagi Reykjavíkur á Djúpavatnsleiðinni.
Team Kría frá hjólreiðafélaginu Tind á Djúpavatnsleiðinni.
Brekkan góða í Festarfjallinu. Mynd/Bláa lónið
Djúpavatnsleiðin er draumkennd og ægifögur. Mynd/Bláa lónið
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum