fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Kynning

Öflug þarmaflóra er grunnur að sterku ónæmiskerfi

Kynning
Jóhanna María Einarsdóttir
Föstudaginn 29. október 2021 10:53

Til að viðhalda heilbrigðri þarmaflóru er mikilvægt að huga að hollu og fjölbreyttu mataræði ásamt því að innbyrða mjólkursýrugerla dag hvern í formi bætiefna sem hefur jákvæð áhrif á þarmaflóruna.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þarmaflóran inniheldur yfir þúsund mismunandi tegundir gerla og baktería sem sinna ýmsum mikilvægum hlutverkum í mannslíkamanum

Í meltingarveginum lifa trilljónir baktería og eru flestar þeirra staðsettar í ristlinum. Í daglegu tali köllum við þessar bakteríur þarmaflóru og í ristlinum sinna þær ýmsum afar mikilvægum hlutverkum. Þær framleiða m.a. vítamín, amínósýrur, stuttar fitusýrur, ýmis boðefni og ensím. Góð og vel samsett þarmaflóra er grunnurinn að sterku ónæmiskerfi og oftar en ekki er hægt að rekja ýmsa líkamlega og andlega kvilla til slæmrar þarmaflóru.

Tengsl þarmaflóru og heilsu

Öflug þarmaflóra er forsenda heilbrigðar starfsemi meltingarfæranna ásamt því að hafa góð áhrif á ónæmis-, tauga- og hormónakerfið. Þarmaflóran ver okkur jafnframt gegn óæskilegum örverum og hefur margskonar jákvæð áhrif á heilsu okkar almennt. Til að viðhalda heilbrigðri þarmaflóru er mikilvægt að huga að hollu og fjölbreyttu mataræði ásamt því að innbyrða mjólkursýrugerla dag hvern í formi bætiefna sem hefur jákvæð áhrif á þarmaflóruna.

Ávinningur mjólkursýrugerla

Mjólkursýrugerlar eru hluti af örlífverum þarmanna en þeir eru eins ólíkir og þeir eru margir og með mismunandi virkni. Mjólkursýrugerla má ýmist finna í fæðu og meltingarvegi mannsins en þeir hafa heilsueflandi áhrif á líkamann með því að efla meltingu og frásog næringarefna. Þegar velja á mjólkursýrugerla til inntöku er ekki úr vegi að skoða magn gerla sem hvert hylki inniheldur sem og virkni og gæði.

Góðgerlar sem margfalda sig í þörmum

Prógastró Gull mjólkursýrugerlarnir eru afar öflugir en þeir innihalda 4 stofna af gall- og sýruþolnum góðgerlum. Einn af þeim er L. Acidophilus DDS®-1 eða asídófílus eins og við þekkjum hann en þetta er nafn á áhrifaríkum gerlastofni þar sem DDS®-1 viðbótin er afar mikilvæg fyrir ýmis hlutverk í starfsemi líkamans. Gerillinn hefur lengi verið þekktur fyrir heilsueflandi eiginleika sína en hann þolir hátt sýrustig í maganum ásamt því að margfalda sig í smáþörmunum þar sem hans er mest þörf. Prógastró Gull mjólkursýrugerlarnir hafa það að markmiði að byggja upp þarmaflóruna og bæta meltingu og hafa reynst afar vel fyrir þá sem þjást af hinum ýmsu kvillum, svo sem magaónótum eða meltingarkvillum. Í hverju hylki af Prógastró Gull mjólkursýrugerlunum eru 15 milljarðar af gall- og sýruþolnum gerlastofnum sem hafa jákvæð áhrif á þarmaflóruna. Prógastró Gull er afar áhrifarík vara og aðlagast líkamsstarfseminni vel ásamt því að vera talin gagnleg fyrir alla aldurshópa.

Prógastró er fæðubótarefni. Neysla fæðubótarefna kemur ekki í stað fjölbreyttrar fæðu og heilsusamlegs lífernis.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum