Hermosa er ein stærsta og farsælasta netverslun með kynlífstæki á Íslandi í dag. Upphafið má rekja til þess að eigendurnir, Vilhjálmur Þór Gunnarsson og Kristín Björg Hrólfsdóttir fluttu inn kynlífstækjadagatöl fyrir ein jólin.
„Dagatölin slógu heldur betur í gegn enda vorum við að bjóða upp á verð sem sást alls ekki hér á landi. Við komum líka strax auga á mikið ósamræmi í verði á kynlífstækjum almennt. Það var oft hátt í 50% verðálagning hjá íslenskum heildsölum ofan á það sem varan kostar á til dæmis Amazon með flutningi, sköttum og öllu því sem að það kostar einstakling að flytja inn eina vöru. Því vatt þetta fljótt upp á sig og síðan þá höfum við haft það að leiðarljósi að bjóða upp á fyrsta flokks kynlífstæki á frábæru verði. Nú erum við spennt að tilkynna að við ætlum að bjóða upp á algerlega sturluð kynlífstækjadagatöl í ár. Við erum viss að þetta eigi eftir að klárast mjög fljótt og því er ráðlagt að þeir sem hafa áhuga á að panta dagatölin að gera það sem fyrst,“ segir Vilhjálmur.
Unaðsleg kynlífstækjadagatöl í forsölu
Á föstudaginn 11. september hefst forsala á nýjum og spennandi kynlífstækjadagatölum hjá Hermosu. „Í fyrra fundum við ekkert dagatal sem stóðst okkar kröfur, en núna í ár höfum við landað tveimur frábærum dagatölum sem henta allskonar pörum. Þetta eru ótrúlega vegleg dagatöl og það sem gerir þau frábrugðin flestum öðrum er að þau innihalda ekki bara vörur frá einum framleiðanda. Hægt er að velja um Premium kynlífstækjadagatal og svo Classic dagatal.“
Úrvalsvörur í svefnherbergið
Premium dagatölin eru sérlega vegleg með frábært úrval af hágæða kynlífstækjum. Dagatalið kostar 39.990 kr. en verðmæti varanna er um 150.000 kr. „Þetta eru 28 vörur sem þýðir að í sumum gluggum er fleiri en ein vara. Þá er meðalverðið á hverri vöru fyrir sig 1.428 kr. sem er lægra verð en á ódýrustu vörunni í dagatalinu. Við erum að tala um Womanizer vörur, paratæki, alvöru leðurvörur, múffur, titrara, sleipiefni og allskonar unaðstæki til þess að gera desemberskammdegið að skemmtilegasta tíma ársins.“
Sígildar unaðsvörur
Hitt dagatalið er alls ekki síðra. Dagatalið er á 24.990 kr. en verðmæti varanna er um 80.000 kr. „Vörurnar í þessu eru mjög góðar og sígildar en vörumerkin eru minna þekkt. Við höfum þó verið að selja frábærar vörur frá þessum aðilum og við vitum að þetta eru flott vörumerki. Þarna eru kegal perlur, titrarar, dildóar, sogtæki, bdsm dót, typpahringur og paratæki. Það verður enginn svikinn af þessum munúðarpakka.“
Samdægurs sendingarþjónusta
„Við vinnum sífellt að því að bæta þjónustuna hvar sem hægt er, en viðskiptavinir okkar hafa kunnað vel að meta góða verðið, fríu heimsendinguna og hvað vefsíðan er þægileg og einföld í notkun. En okkar markmið hefur alltaf verið að einskorða úrvalið við fyrsta flokks vörur. Eins og við segjum oft, þá nennir enginn að skoða 300 dildóa í leit að þeim eina rétta. Við erum búin að leggjast í rannsóknarvinnuna til að einfalda þér lífið.
Það nýjasta hjá okkur er að nú bjóðum við upp á samdægurs heimsendingu, sækja á N1 á leið heim úr vinnu eða í vöruhús. Ef pantað er fyrir hádegi þá geturðu fengið vöruna heimsenda samdægurs. Þetta er í raun engu flóknara en að panta pizzu. Þú færð sms þegar varan fer í bílinn og svo annað þegar það eru 15-20 mínútur í að hún kemur til þín. Það þarf því ekki að bíða heima í heilan dag eftir heimsendingu. Ef fólk vill sækja þá er hægt að sækja sendingar frá kl. 17 og fram á kvöld á allar N1 stöðvar. Þessi kostur hentar mörgum sem vilja kippa pakkanum með sér heim úr vinnu og vilja ekki þurfa að vera heima. Einnig er hægt að sækja sjálfur í vöruhúsið fyrir kl. 17:00 á daginn.
Einnig höfum við bætt við lifandi spjalli á síðunni okkar. Þá geta viðskiptavinir náð í okkur á næstum hvaða tíma sem er sólarhringsins. Við erum nánast alltaf við því við getum hvort heldur er svarað í tölvunni eða símanum.“
Kíktu við í hermosa.is og skoðaðu úrvalið.
Pantaðu kynlífstækjadagatal hér.
Facebook: Hermosa.is
Instagram: hermosaisland