fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Kynning

Hvammshólar ehf: Allt að 99% hreinsun á skólpi

Kynning
Jóhanna María Einarsdóttir
Þriðjudaginn 11. ágúst 2020 10:40

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fjölskyldufyrirtækið Hvammshólar ehf. sérhæfir sig í hreinsun á skólpi og býður upp á fjölbreyttar lausnir á því sviði fyrir ólíka viðskiptavini. Eigandi Hvammshóla ehf. er Sigurður Viggó Halldórsson pípulagningarmeistari, en hann hefur sérhæft sig í uppsetningu skólphreinsistöðva og ólíkum aðferðum við hreinsun á skólpi síðastliðin 15 ár. Ásamt því að selja hreinsistöðvar, bjóða Hvammshólar einnig upp á viðhald, mælingar og eftirlit með gæðum hreinsunar. Hreinsistöðvar fyrirtækisins skila allt að 99% hreinsun þar sem tekið er á hreinsun á köfnunarefnum, fosfór og kólígerlum.

Leiðandi á sviði skólphreinsunar

Árið 2013 hófst náið samstarf með þýska fyrirtækinu Graf, sem er leiðandi á sviði skólhreinsunar og hefur framleitt tanka í yfir 50 ár. Þýska fyrirtækið styrkti sig enn frekar á þessu sviði árið 2014 með kaupum á fyrirtækinu Klaro sem framleiðir hreinsibúnað í tankana og því er um heildstæðar lausnir í hreinsun skólps að ræða.

Þrjár lausnir

Hvammshólar bjóða upp á þrjár mismunandi lausnir til skólphreinsunar og fer valið á lausn eftir kröfum viðtakanda. Valið ræðst einnig af starfsemi og fjölda notenda og er lausnirnar að finna við hótel, íbúðarbyggðir, sumarhús og heilsárshús. Fyrirtækið hefur meðal annarra verið í samstarfi við Umhverfisstofnun og heilbrigðiseftirlit víða um land og eru notendur Hvammshóla í Mývatnssveit, á Þingvöllum, í Eyjafirði, á Hornafirði og Öndverðarnesi, svo nokkrir staðir séu nefndir sem dæmi.

Vinsælasta lausnin – ekkert rafmagn!

Ódýrasta og einfaldasta lausnin er Graf ANAEROBIX rotþró með síu fyrir 1–600 íbúa. Hún hentar notendum sem vilja ódýra lausn en mikla hreinsun (yfir 90%). Um er að ræða hreinsivirki sem hægt er að bæta við og stækka ef á þarf að halda vegna fjölgunar íbúa/notenda. Þessi lausn hefur einnig þann möguleika að hægt er að breyta henni síðar í skólhreinsistöð sem hreinsar þá allt að 99%. Minnstu einingarnar eru 1 tankur en þegar um fleiri notendur er að ræða eru tankarnir raðtengdir sem seyrutankar, svifagnatankar og síutankar. Sían er staðsett við útrennslið. Hún er samsett af mörgum plastkubbum með stórum fleti sem grípa svifagnir á leiðinni út. Þessi aðferð skilar yfir 90% hreinsun. Hægt er að auka hreinsigetu ANAEROBIX með eftirhreinsun í siturgöngum t.d. úr rauðamöl eða vikri.

Anaerobix XXL

Hreinsistöð sem hentar vel á viðkvæmum vatnasvæðum

Í næsta flokki er Graf One2clean hreinsistöð fyrir 5–50 íbúa og hreinsar hún með lífrænum hætti allt að 99%. Um er að ræða eitt tankhólf þar sem hreinsun fer fram tvisvar á sólarhring og hentar lausnin vel á þeim svæðum þar sem gerð er rík krafa um mikla hreinsun. Hægt er að bæta við búnaði til lækkunar á fosfór og köfnunarefni og með því uppfyllir hreinsistöðin kröfur Umhverfisstofnunar um ítarlegri hreinsun. Þetta er því góður kostur á viðkvæmum vatnsverndarsvæðum þar sem talin er þörf á meiri umhverfisvernd vegna viðkvæmrar náttúru eða dýralífs.

 

One2Clean

Stærsta lausnin fyrir allt að 750 íbúa

Stærsta hreinsilausnin er Graf Klaro XXL skólphreinsikerfi fyrir 50–750 íbúa. Graf Klaro XXL skilar allt að 98% hreinsun og fer hreinsunin fram með lífrænum hætti. Í aðalatriðum vinnur stöðin í tveim hólfum og skrefum. Fyrst er geymsla á óhreinsuðu skólpi í seyruhólfi. Þar á eftir er hreinsun á skólpi í lokuðu hreinsihólfi. Hreinsun fer fram fjórum sinnum á sólarhring. Ýmis aukabúnaður fæst frá Graf sem hægt er að „prjóna“ við lausnina. Má þar telja búnað til lækkunar köfnunarefnis, til aukinnar fosfórhreinsunar og/eða til að fækka gerlum í hreinsuðu frárennsli við útdælingu með UV geislun. Einnig fæst fjarstýrður eftirlitsbúnaður sem gefur upplýsingar um bilanir og stöðu, auk þess sem hægt er að bilanagreina og gera við með fjarrænum hætti.

Nánari upplýsingar fást á Facebook-síðunni: Hvammshólar
Netpóstur: siggi@hvammsholar.is
Sími: 660-4085

 

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum