fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Kynning

Allt að 50% afsláttur á Kringlukasti: Hrærivélar, heyrnartól, hárblásarar…

Kynning
Jóhanna María Einarsdóttir
Fimmtudaginn 5. mars 2020 14:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Nú er Kringlukast í Byggt og búið og eru valdar vörur á allt að 50% afslætti. Pottasett, hrærivélar, heyrnartól og hárblásarar – það er fjölbreytt úrval af tilboðum sem fólk ætti ekki að láta framhjá sér fara. Hér eru nokkur bitastæð tilboð:

 

Ryksuguvélmenni á 25% afslætti

Roomba 605 ryksuguvélmennið frá iRobot er ótrúlega öflugt miðað við verð. Vélmennið notar þriggja stiga AeroVac hreinsikerfi og vinnur með skynjurum til að bregðast við umhverfinu. Ryksugan endist í allt að 60 mínútur á einni hleðslu og fer sjálf í heimastöð áður en rafhlaðan tæmist. Hún er á 25% afslætti á Kringlukastinu og er á 29.995 kr (fullt verð 39.995 kr).

Pottasett frá Fissler

Einnig eru nokkur pottasett frá vörumerkinu Fissler á tilboði. Þar má helst nefna Paris pottasettið sem telur fimm vandaða potta úr ryðfríu stáli. Pottarnir mega fara í uppþvottavél og þola allt að 180°C í ofni (án loks). Á Kringlukastinu er Paris pottasettið á 38% afslætti og kostar því aðeins 24.995 kr.

Einstaklega hljóðlát ryksuga

Fyrir fólk sem vill hefðbundnari ryksugur þá mælum við með Ultra Silencer ryksugunni frá Electrolux. Þessi ryksuga er einstaklega hljóðlát og með orkusparandi mótor. Hún er á 33% afslætti á Kringlukastinu og kostar því aðeins 19.995 kr. (fullt verð 29.995 kr).

 

Drottningin í eldhúsinu

Queen of Hearts hrærivélin úr 100 ára afmælislínu KitchenAid er nú á 33% afslætti, á aðeins 79.995 kr. (fullt verð 119.995 kr). Hér er á ferðinni Artisan hrærivél í nýjum búningi. Einstakur rauður litur og hönnun innblásin af ástríðu: með stílhreinu krómi, bandi með hundrað litlum hjörtum og lógó til heiðurs 100 ára sögu KitchenAid vörumerkisins.

Ómissandi í partíið

Partybox 100 frá JBL er svo miklu meira en bara ferðahátalari. Hátalarinn stendur undir nafni og heldur partíinu gangandi í allt að 12 klukkustundir á einni hleðslu. Einnig er tengi fyrir bæði hljóðnema og gítar og því ómissandi í hið klassíska íslenska gítarpartí. Tengdu tvö Partybox saman með Bluetooth til að skapa ótrúlegan hljóm og stilltu partíljósin til að flökta í takt við tónlistina.

Þessi hátalari er á 40% afslætti og kostar því aðeins 29.995 kr. (fullt verð 49.995).

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum