fbpx
Miðvikudagur 24.apríl 2024
Kynning

Lagnir og lóðir ehf: Jarð-, lagna- og lóðavinna

Kynning
Jóhanna María Einarsdóttir, Ritstjórn DV
Föstudaginn 7. febrúar 2020 10:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Bjarni Ingvar Halldórsson, eigandi fyrirtækisins Lagnir og lóðir ehf., hefur gaman af vinnunni. Það kemur sér vel því hann rekur nokkuð umfangsmikla starfsemi í jarð- og lagnavinnu með litlum mannafla og vinnur mikið sjálfur. Bjarni vinnur fyrir byggingaverktaka, fyrirtæki og stofnanir, en mest fyrir einstaklinga – til dæmis þá sem þurfa að láta skipta um lagnir, helluleggja, tyrfa og/eða endurskipuleggja garðinn eða gera fínt í kringum sumarbústaðinn. Fyrir byggingaverktaka annast hann alla þá jarðvegsvinnu sem þarf að framkvæma áður en hús og önnur mannvirki eru byggð.

„Ég er með nokkra starfsmenn á sumrin en færri á veturna,“ segir Bjarni en töluverðan tækjabúnað þarf til að halda starfsemi hans gangandi: „Ég er með gröfur, vörubíla, sendibíla og svo ýmis minni tæki og búnað,“ segir Bjarni en töluverður kostnaður er við að endurnýja slíkan tækjabúnað svo vel sé og stundum þarf að gera við fram á nótt til að hafa öll tæki klár fyrir daginn.

„Ég er mjög mikið í drenlögnum, við mokum fyrir og skiptum um allar lagnir sem þarf, undir og við hús,“ segir Bjarni en lagnavinna getur orðið aðkallandi og er framkvæmd á öllum árstímum. „Það er verst ef það er mikil snjókoma eða mikið frost en annars getur þetta farið fram hvenær sem er.“

Lagnir og lóðir ehf. annast líka ýmis lagnaverkefni fyrir veitufyrirtæki og leggur og endurnýjar lagnir fyrir fyrirtæki og stofnanir.

Styttist í vorverkin

Tíminn líður hratt, núna er kominn janúar og áður en við vitum af fer vorið að nálgast. Aðspurður hvaða verk sem tengjast hans starfsemi fólk ætti að huga að fyrir vorið segir hann:

„Vetur hér geta verið ansi umhleypingasamir og blautir þá verður fólk mjög oft vart við leka í kjöllurum. Ýmist eru þá lagnir ónýtar eða það vantar drenlagnir í kringum hús – en það er algengt í gömlum húsum. Þegar drenlagnir eru ónýtar endurnýjum við þær og skiptum um allar lagnir sem þarf undir og við húsið, hvort sem um er að ræða fráveitu- eða neysluvatnslagnir. Fólk nýtir þá oft tækifærið og breytir staðsetningu niðurfalla, handlauga og klósetta. Þar sem vantar lagnir setjum við einfaldlega nýjar lagnir.“

Margir sem vilja umbreyta görðum sínum og lóðum leita til Lagna og lóða ehf. Bjarni segir gott að huga að slíkum verkefnum um leið og frost fer úr jörðu. Hann endurmótar garða, mokar fyrir hellulögnum, sólpöllum og heitum pottum. Í sumarbústaðalöndum gerir hann vegi auk þess að umbreyta görðum og setja lagnir í og við sumarbústaði.

Verksvæði fyrirtækisins er allt suðvesturhorn landsins.

Nánar má fylgjast með starfseminni á Facebook-síðunni Lagnir og lóðir. Til að fá nánari upplýsingar eða tilboð í verk er hægt að hringja í Bjarna í síma 891-9120 eða senda tölvupóst á netfangið vaxandivandi@gmail.com

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum