fbpx
Þriðjudagur 23.apríl 2024
Kynning

Eitthvað fyrir alla í Pole Sport Heilsurækt

Kynning
Jóhanna María Einarsdóttir
Mánudaginn 17. febrúar 2020 12:28

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Pole Sport er spennandi líkamsrækt fyrir alla og fullkomin fyrir þá sem vilja stunda öðruvísi líkamsrækt sem samtvinnar þokka, styrk og þol. Það geta allir komið í Pole Sport Heilsurækt því við bjóðum upp á námskeið fyrir byrjendur og lengra komna í afar fjölbreyttri líkamsrækt. Þá erum við með Pole Sport fyrir byrjendur, miðlungsreynda og svo framhaldshópa. Einnig er námskeið í Flex liðleikaþjálfun fyrir þá sem vilja liðka sig og komast til dæmis í splitt, spíkat og bæta bakfettuna. Svo eru námskeið fyrir byrjendur og lengra komna í Pole Fabric, Pole Dance, Lyra loftfimleikum, silki námskeið og fjölmargt fleira. Það er eitthvað fyrir alla í Pole Sport Heilsurækt.

Pole Sport Heilsurækt var opnuð árið 2011 af Halldóru Kröyer og hefur studíóinu heldur betur vaxið fiskur um hrygg. Þjálfarar Pole Sport hafa margs konar kennsluréttindi, m.a. sem Pole Fitness Instructor, einkaþjálfararéttindi, Yoga-réttindi, Fit Pilates, Zumba, VauLT Aerial Lyra™, TRT Kennararéttindi, Þrekþjálfararéttindi, Spin City Pole & Lyra svo eitthvað sé nefnt. Þjálfarar og nemendur heilsuræktarinnar hafa meðal annars staðið sig með eindæmum prýðilega á alþjóðlegum íþróttamótum. Þá má nefna að hún Sól Stefánsdóttir þjálfari landaði öðru sæti í Pole Sport í Evrópu árið 2014.

Stórskemmtileg heilsurækt fyrir alla

Það er alltaf gaman að ögra sér og prófa eitthvað nýtt. Og hver veit, kannski er Pole Sport eitthvað fyrir þig, en þú veist það ekki fyrr en þú prófar. Hægt er að kaupa stakt skipti á eitthvert af þeim fjölmörgu námskeiðum sem Pole Sport Heilsurækt býður upp á. Einnig er hægt að kaupa „Unlimited beginner“-kort sem gildir í sjö daga. Þá fær handhafi tækifæri til að prófa alla tímana sem eru í boði hjá Pole Sport Heilsurækt til þess að finna hið fullkomna námskeið fyrir sig.

Stakt skipti í Pole Sport Heilsurækt kostar 3.490 kr. og sjö daga ótakmarkað kort kostar 4.990 kr. Allir sem kaupa gjafabréf fá 1000 kr. gjafabréf í kaupbæti frá www.diva.is sem er skóverslun sem sérhæfir sig í brúðarskóm, fitnessskóm, dansskóm og fleira. Hagstæðara er að kaupa langtímakort en þau eru frá 9.900 kr.

Hópefli / Óvissuferðir / Afmæli

Ertu að leita að skemmtilegu hópefli? Óvissuferð? Afmæli? Gæsun? Steggjun? Komdu með hópinn til okkar! Þið fáið sal og þjálfara frá okkur sem leiðir ykkur í gegnum skemmtilegan tíma. Hægt er að velja á milli þess að vera með krefjandi eða léttari tíma, taka listdans-, súludans- eða sporttíma. Við sníðum tímann að ykkar þörfum.

Pole Sport Heilsurækt er staðsett að Stangarhyl 7.

Nánari upplýsingar má nálgast á www.polesport.is

Bókanir og verðtilboð eru í síma 778-4545 og á tölvupóstinum okkar polesport@polesport.is

Fylgstu með á FacebookPole Sport Heilsurækt

Instagram: @Polesport.is

Snapchat: Pole Sport

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum