fbpx
Miðvikudagur 24.apríl 2024
Kynning

Spennandi leiðir til þess að efla sig og styrkja hjá MSS

Jóhanna María Einarsdóttir
Laugardaginn 1. febrúar 2020 12:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Meginhlutverk Miðstöðvar símenntunar á Suðurnesjum (MSS) er að efla sí- og endurmenntun Suðurnesjamanna, auka menntun og lífsgæði íbúa svæðisins og styrkja þannig einstaklinga og atvinnulíf. Í mörgum námsleiðum er lögð áhersla á sveigjanlegt nám þar sem nemendur geta nálgast námsefni á netinu, óháð tíma og rúmi. „Einnig er mikið um nemendur hjá okkur í fjarnámi, sem búa annars staðar á landinu, og jafnvel erlendis. Við reynum að koma til móts við alla nemendur enda er nám afar mikilvægt skref í átt að sjálfseflingu,“ segir Særún Rósa Ástþórsdóttir, verkefnastjóri hjá MSS. Í vetur og á komandi hausti verða enn fleiri og spennandi leiðir færar til þess að efla sig og styrkja hjá MSS.

MSS tók nýlega við skipulagningu endurmenntunarnámskeiða atvinnubílstjóra fyrir Samgöngustofu. Námskeiðin eru í boði fyrir starfandi atvinnubílstjóra og þá sem starfa á atvinnutækjum sem krefjast meiraprófs. Námskeiðin fjalla um mismunandi þætti sem snúa að mannlegum atriðum, praktískum sem og öryggisatriðum. Endurmenntunarnámskeið atvinnubílstjóra eru VistaksturFarþegaflutningarVöruflutningarFagmennska og mannlegi þátturinnLög og reglurUmferðaröryggi og Skyndihjálp. Næstu námskeið hefjast í febrúar og standa flest námskeið yfir í um einn dag.

Skrifstofunámið er ætlað fólki á vinnumarkaði, 18 ára eða eldri, sem vinnur við almenn skrifstofustörf eða stefnir á að starfa á skrifstofu. Kenndur er grunnur í tölvukunnáttu, bókhaldi og almennum skrifstofustörfum. Ekki er nauðsynlegt að hafa reynslu af skrifstofustörfum til þess að skrá sig í námið.

Jógakennaranámið var sett á laggirnar í samstarfi við jógakennarann Maríu Olsen í fyrrahaust og byrjar nú af fullum krafti aftur í haust. Námið er viðurkennt af Jógakennarafélagi Íslands og Yoga Allience. Í náminu er lögð áhersla á verklega kennslu og undirbúning þátttakenda til þess að takast sjálfir á við starf jógakennarans að loknu námi. Námsþættir í náminu eru meðal annars lífstíll jógans, anatómía, kennslutækni, orkustöðvar, jóga Nidra og aðrar slökunaræfingar, siðareglur jógakennara, viðskipti, skattur og fleira, heimspeki og æfingakennsla.

María Olsen jógakennari.

MSS býður upp á Pólskunámskeið fyrir kennara og aðra starfsmenn skólastofnana. Á námskeiðinu er áhersla lögð á talað mál, hlustun, ritun og samræður. Megináhersla er á pólsku sem nýtist til daglegrar notkunar og orðaforða sem nýtist starfsfólki innan skólastofnunar.

MSS býður reglulega upp á námskeið án endurgjalds fyrir félagsmenn Verkalýðs- og sjómannafélags Keflavíkur og nágrennis (VSFK). Í febrúar byrja tvö námskeið; Skyndihjálp og svo Tímamót og tækifæri, þar sem farið verður yfir þær breytingar sem verða á tekjum fólks við starfslok, hvernig best er að sækja um þær greiðslur sem standa til boða og hvernig þær tengjast innbyrðis. Námskeiðin eru opin fyrir aðra en félagsmenn á meðan laus pláss eru.

MSS býður einnig upp á styttri námskeið sem ætlað er þeim sem vilja styrkja sig á vinnumarkaðnum.

Á námskeiðinu Er gaman að vinna með mér? er farið í mikilvægi þess að skilja og skynja hvernig við virkum á aðra í samskiptum. Markmiðið er að þátttakendur öðlist meiri þekkingu á því sem einkennir góða samvinnu á vinnustað og hvað hver og einn geti lagt af mörkum til að svo sé.

Í Verkefnastjórnun verður farið í grunnþætti verkefnastjórnunar. Námskeiðið nýtist í alhliða verkefnastjórnun, allt frá því að halda veislur yfir í að stjórna umfangsmiklum verkefnum. Markmið námskeiðsins er að kynna fyrir þátttakendum mannlega þáttinn í verkefnum, skilgreiningu verkefna, markmiðasetningu, áætlanagerð, framkvæmd og eftirfylgni verkefna.

Vilt þú læra hvernig á að halda Kraftmiklar kynningar? Um er að ræða hagnýtt námskeið þar sem þátttakendur efla sig í að miðla upplýsingum í lífi og starfi. Farið verður yfir lykilatriði sem snúa að tilgangi og skilaboðum, mótun kynningar, framsetningu efnis og framkomu. Kraftmikið námskeið fyrir alla sem vilja standa traustari fótum í sviðsljósinu hvort sem er í fjölskylduveislunni, í kennslu eða á stóra sviðinu í Hörpu!

Það er aldrei of seint að læra!

Skoðaðu úrval námsframboðs MSS á vefsíðunni mss.is

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum