Heimilistæki fagnar 58 ára afmæli með Netafmælistilboðum dagana 4. – 8. Nóvember. Þar eru 58 flottar vörur á allt að 58% afslætti.
Enginn sendingarkostnaður
Afmælistilboðin gilda eingöngu í netverslun Heimilistækja en þar má finna jafnvel meira úrval en finnst í verslunum þeirra á landinu. Auk þess er boðið upp á fría heimsendingu með öllum afmælistilboðunum, hvort sem pakkinn er stór eða smár. Það þýðir að þú getur pantað þér t.d. glæsilegt OLED sjónvarp frá Philips á 20% afslætti og fengið það sent til þín án sendingarkostnaðar.
Á afmælistilboði eru meðal annars glæsileg OLED sjónvörp frá Philips á 20% afslætti og UHD sjónvörp frá LG á 25% afslætti.
Roombur á tilboði
Einnig á afmælistilboði eru hinar vinsælu iRobot ryksugur sem er stjórnað með appi – valdar gerðir á allt að 27% afslætti. Þar á meðal er ein helsta nýjungin frá iRobot, Roomba i7 sem er með sjálfvirkri tæmingarstöð. Ryksugan tæmir sig sjálf í sérstakt hólf á hleðslustöðinni svo þú þarft ekki að tæma hana eftir hvert skipti. Þú einfaldlega tæmir hólfið þegar það er fullt eftir nokkrar umferðir um húsið.
Í jólapakkann
Þá er einnig hægt að gera frábær kaup t.d. í jólapakkana en það er um að gera að nýta svona tilboðsdaga til að byrja jólagjafainnkaupin. Á allt að 58% afslætti eru t.d. hártæki, heilsuvörur og Philips Hue perur, og hin ýmsu smærri tæki og tól í eldhúsið svo eitthvað sé nefnt.
Allur jólamaturinn kemst fyrir
Þá eru mörg stór heimilistæki einnig á tilboði. T.d. glæsilegt svartur kæliskápur frá Samsung með frysti. Kæliskápurinn nær hátt upp (201cm á hæð) svo matarinnkaupin ættu að rúmast vel án þess að hann taki mikið gólfpláss úr eldhúsinu. Hann er auk þess einstaklega hljóðlátur, aðeins 38 dB sem er með því hljóðlátara sem í boði er hjá kæliskápum í dag. Kæliskápurinn er auk þess með Fresh Zone skúffu sem heldur matvælum lengur ferskum og sjálfvirkri afþýðingu. Þú sparar þér 50.000 krónur með því að kaupa þennan flotta kæliskáp á afmælistilboði á aðeins 129.995 kr. (fullt verð 179.995).
Öll þessi tilboð og meira til má skoða í Afmælisbæklingi Heimilistækja á ht.is og þar má einnig kynna sér heimsendingarskilmála sem gilda á meðan tilboðsdagarnir standa yfir.
Skoðaðu bæklinginn hér