Íslenska vefverslunin SANA – umhverfisvænar vörur, var stofnuð í septemer síðastliðinn og hafa móttökurnar verið vonum framar. Íslenskir neytendur hafa beðið spenntir eftir því að komast í fyrsta flokks húð- og hárvörur frá flottum merkjum frá Asíu enda hafa vörur frá þessum svæðum vakið gríðarlega athygli.
SANA býður upp á hágæða hreinar húðvörur frá Japan og Suður-Kóreu, frá merkjum þar sem umhverfismálin eru höfð að leiðarljósi. Með opnun sana.is eykst vöruúrvalið á gæðahúðumhirðuvörum töluvert hér á landi í samræmi við aukna eftirspurn.
Aldagamlar aðferðir og nýjungar
Austur Asía er afar framarlega þegar kemur að nýjungum í húðumhirðu og förðunarvörum. Hvort sem um er að ræða uppfinningar á nýjum vörum, eða í því að nýta margreyndar fornar austurlenskar aðferðir. En það er aldagömul hefð fyrir víðtækri húðumhirðu í þessum menningarheimum. Stofnendur SANA gerðu rannsóknir á þeim húð- og hárvörum sem hafa verið mikið í sviðsljósinu og vörur frá Japan og Suður-Kóreu stóðu upp úr hvað varðar gæði, hreint framleiðsluferli og langa sögu í húð- og hárumhirðu.
Umhverfisvæn framleiðsla
Merkin sem eru í boði hjá SANA heita AROMATICA, SIORIS, COKON LAB og RUHUKU og koma frá Japan og Suður-Kóreu. Öll merkin státa sig af hreinu framleiðsluferli, allt frá vatninu sem þau nota, rafmagninu, frá skrifstofum þeirra og verksmiðju. Það er passað upp á að lágmarka sóun og framfylgja áhrifaríkri umhverfisstefnu. Hugsunin varðandi pakkningarnar eru einnig umhverfisvænar, en pakkningarnar eru 100% endurvinnanlegar og kemur varan í gleri, eða umbúðum sem er PP, PET plast.
Ávallt það besta fyrir neytendur
Allar vörurnar í vefverslun SANA eru unnar úr hreinum afurðum og eru án skaðlegra efna. Vörurnar eru flestar vottaðar af EWG, eru vegan og COSMO/ECOCERT vottaðar. EWG vottun þýðir að varan hafi farið í gegnum vissa gæðaúttekt, þar sem athugað er hvort að innihald varanna standist ströngustu kröfur EWG vottunarinnar og haldi ekki upplýsingum frá notendum. COSMOS vottunin bannar notkun nanóefna, ásamt notkun á erfðabreyttum lífverum, gammageisla og röntgengeislað innihaldsefni, svo og prófanir á dýrum. COSMOS krefst lífrænnar vottunar, en vörurnar sem SANA býður upp á standast þessar kröfur og mun fyrirtækið ávallt leitast við að bjóða upp vörur í þessum gæðaflokki.
Ný og spennandi vörumerki sem standast ofangreindar kröfur munu bætast við fljótlega í vefverslunina sana.is og áhugasamir eru hvattir til þess að fylgjast með SANA á Instagram: Sana_vefverslun og á Facebook: SANA vefverslun.
Október glaðningur
Fram til 31. október verður 15% kynningarafsláttur á vörunum frá SANA. Einnig verður boðið upp á fría heimsendingu heim að dyrum ef keypt er fyrir 15.000 eða meira. Kynntu þér afsláttinn á heimasíðunni www.sana.is og notaðu afsláttarkóðann: október-gladningur til að fá afsláttinn.
Góð húðumhirða er fyrir alla
Hvert merki hefur sína sérstöðu. AROMATICA er þekkt fyrir hreint framleiðsluferli og framúrskarandi innhaldsefni. Ekki skemmir fyrir hvað hönnunin á vörunum er falleg. SIORIS leggur áherslu á mjög einfalda hönnun og hrein innihaldsefni. COKON LAB leggur einnig áherslu á að nota hrein og flott innihaldsefni og þá sérstaklega þegar kemur að mýktinni, þar sem vörurnar eru unnar úr silki. RUHUKU býr að framúrskarandi efnum úr náttúrunni frá japönsku eyjunni Okinawa, þar sem er eyjarskeggjar eru þekkti fyrir langlífi. Vörurnar frá SANA henta öllum kynjum og er hægt að finna vörur sem henta öllum húðgerðum, hvort heldur er þurra, feita, blandaða, unga sem aldna.
Nánari upplýsingar má nálgast á sana.is