Tveggja herbergja íbúðir eru nú til sölu á Ásbrú á Suðurnesjum á einungis 14,9 til 15,9 milljónir. Um er að ræða einstakt tækifæri fyrir fyrstu íbúðarkaupendur.
Nánari lýsing
Íbúðirnar eru 40 fermetrar að stærð og tveggja herbergja. Íbúð skiptist í rúmgott og opið alrými með stofu og eldhúsi. Þá er svefnherbergi og baðherbergi með baðkari og þvottaaðstaða er staðsett inni í íbúðinni. Geymsla er svo í sameign.
Ört stækkandi samfélag
Íbúðirnar eru staðsettar á Ásbrú sem er gífurlega spennandi og ört stækkandi samfélag á Suðurnesjum. Þar er stutt í alla þjónustu og skóla sem og stórglæsileg náttúrusvæði sem býður upp á fjölbreytta og skemmtilega útivist. Ásbrú er svo í ekki nema um þrjátíu mínútna akstri frá Reykjavík.
Opið hús verður um helgina á laugardag og sunnudag milli 13:00 – 15:00 og verða fasteignasalar Stakfells á svæðinu. Mikil eftirspurn er eftir eignunum og því gildir gamla góða reglan; fyrstur kemur fyrstur fær.
Nánari upplýsingar gefa Matthildur Sunna Þorláksdóttir lögfræðingur og lögg. fasteignasali í síma 690 4966 eða matthildur@stakfell.is